Handbolti

Aðdráttarafl Patreks hafði mikið að segja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Predator augnablik hjá Hergeiri Grímssyni og Patreki Jóhannessyni í kynningarmyndbandi Stjörnunnar.
Predator augnablik hjá Hergeiri Grímssyni og Patreki Jóhannessyni í kynningarmyndbandi Stjörnunnar. stjarnan

Hergeir Grímsson segir að ýmsar ástæður séu fyrir því að hann ákvað að ganga í raðir Stjörnunnar frá Selfossi en ein sú stærsta sé tækifærið að vinna aftur með Patreki Jóhannessyni.

„Þetta hefur legið í loftinu í einhvern tíma,“ sagði Hergeir í samtali við Vísi í dag. „Það eru einhverjar ástæður fyrir þessu, persónulegar og svo langaði mig að breyta til og fá aðra áskorun sem gera mig vonandi að betri leikmanni.“

Hjá Stjörnunni hittir Hergeir fyrir Patrek Jóhannesson sem þjálfaði hann á Selfossi á árunum 2017-19. Saman urðu þeir Íslandsmeistarar 2019. Hergeir hlakkar til að spila aftur undir stjórn Patreks.

„Það hafði helling að segja. Ég vann Íslandsmeistaratitilinn með honum og finnst ótrúlega gaman að spila undir hans stjórn og vinna með honum. Það hafði mikil áhrif á þessa ákvörðun,“ sagði Hergeir.

Getum gert stóra hluti

Stjarnan endaði í 6. sæti Olís-deildarinnar í vetur og tapaði 2-0 fyrir ÍBV í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Hergeir sér sóknarfæri hjá Stjörnunni.

„Ég sé hellings möguleika. Ég er viss um að við getum byggt upp mjög gott lið. Og þetta er mjög gott lið sem hefur komist í úrslitakeppnina en það vantaði kannski herslumuninn. Við getum gert stóra hluti,“ sagði Hergeir.

Hann viðurkennir að það sé ekki auðvelt að yfirgefa Selfoss, félagið sem hann hefur spilað með alla ævi.

„Það er mjög erfitt að fara frá Selfossi. Þetta er mitt uppeldisfélag og ég hef spilað þarna frá því ég var barn og unnið marga sigra og kynnst mikið af góðu fólki,“ sagði Hergeir. „Ég er þakklátur fyrir alla á Selfossi og þeir hafa sýnt mér mikinn stuðning með þessa ákvörðun.“

Alltaf verið miðjumaður

Undanfarin tvö tímabil hefur Hergeir spilað á miðjunni eftir að hafa verið í vinstra horninu árin þar á undan. Miðjan eru samt hans náttúrulegu heimkynni.

„Ég hef alltaf verið miðjumaður en svo fór ég í hornið til að redda einhverju og maður stóð sig vel þar. Ég spilaði á miðjunni upp alla yngri flokka og byrjaði þar í meistaraflokki,“ sagði Hergeir.

Hann segist hafa fengið tækifæri til að fara í atvinnumennsku en ekkert nógu spennandi til að stökkva á það.

„Það hefur alveg verið á borðinu en ekki eitthvað sem ég var nógu hrifinn af. En ég hef ekki lokað þeim dyrum og það kemur kannski að því,“ sagði Hergeir að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×