Það eru margir, sem eiga mikið af ljósmyndum í fórum sínum, ekki síst eldra fólk, sem tók myndir á pappír og slædds. Yngra fólk í dag tekur meira og minna allar myndir á símana sína og það er allt á stafrænu formi. Það var hátíðleg stund í Héraðsskjalasafni Árnesinga á Selfossi í vikunni þegar Tommi lögga, eins og hann er alltaf kallaður en heitir fullu nafni Tómas Jónsson færði safninu 60 þúsund ljósmyndir, sem hann hefur tekið, að gjöf til varðveislu um ókomin ár. Tómast starfaði til fjölda ára í lögreglunni í Árnessýslu.

Kjartan Björnsson, sem er formaður stjórnar Héraðsskjalasafnsins afhenti Tómasi viðurkenninguna og veglegan blómvönd.
„Það er auðvitað ekki sjálfgefið að nokkur maður leggi það á sig að vinna án endurgjalds í ellefu ár með slíkri trúmennsku eins og Tómas hefur gert hér hjá okkur. Þetta er bara algjörlega ómetanlegt fyrir okkar samfélag að eiga slíkt fólk því við gætum þetta ekki öðruvísi,“ segir Kjartan.

Héraðsskjalasafnið er með sérstakt ljósmyndaverkefni í gangi undir heitinu myndasetur.is Þorsteinn Tryggvi Másson, forstöðumaður safnsins segir safn Tomma lögga ómetanlegt fyrir safnið.
„Þetta eru um það bil fimm til sex stöðugildi á safninu á ári, sem liggja í þessari vinnu hjá Tómasi og sú vinna er eiginlega alveg jafn mikilvæg. Núna getum við nafngreint fólk og við getum staðsett þessa hluti og það skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Þorsteinn Tryggvi.

Tómas hefur unnið samfleytt í 11 ár á safninu hálfan vinnudag til að skrásetja safnið sitt.
„Ef ég væri ekki búin að hafa þessa fínu aðstöðu á safninu og þetta yndislega starfsfólk safnsins þá væri ég örugglega ekki svona vel á mig komin. Ef ég hefði verið að horfa á naflan á mér allan þennan tíma væri ég ábyggilega komin í kör,“ segir Tómas hlægjandi.
