Sport

Dagskráin í dag: Íslenskur, enskur og sænskur fótbolti og nóg af golfi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valskonur heimsækja Stjörnuna í Bestu-deild kvenna í kvöld.
Valskonur heimsækja Stjörnuna í Bestu-deild kvenna í kvöld. Vísir/Vilhelm

Föstudagurinn þrettándi er kannski óhappadagur fyrir suma, en fyrir áhugafólk um knattspyrnu og golf verður dagurinn í dag líklega ekki sem verstur.

Við tókum daginn snemma og hófum beina útsendingu frá Aramco Team Series - Bangkok á LET-mótaröðinni í golfi nú klukkan 06:00 á Stöð 2 Golf.

Golfið heldur svo áfram því klukkan 11:00 tekur Soudal Open á DP World Tour við á Stöð 2 Golf, áður en við færum okkur á Founders Cup á LPGA-mótaröðinni klukkan 14:30 á Stöð 2 Sport 4.

Golfveislunni er þó ekki lokið því AT&T Byron Nelson á PGA-mótaröðinni loka golfdeginum frá klukkan 20:00 á Stöð 2 Golf.

Þá er einnig nóg af fótboltaleikjum í boði í dag og í kvöld og fyrsti leikur á dagskrá er viðureign Rosengård og Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni klukkan 16:55 á Stöð 2 Sport 3.

Klukkan 18:40 er svo komið að viðureign Luton og Huddersfield í umspili ensku 1. deildarinnar í knattspyrnu um laust sæti í úrvalsdeildinni.

Að lokum eru þrír leikir í Bestu-deild kvenna á dagskrá og hefjast útsendingar frá þeim öllum klukkan 19:05. Stjarnan tekur á móti Val á Stöð 2 Sport, en á vefnum verður hægt að horfa á leiki KR og Breiðabliks annars vegar, og Keflavíkur og Aftureldingar hins vegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×