Lífið

Stjörnulífið: Mæðradagurinn, HönnunarMars og Las Vegas

Elísabet Hanna skrifar
Sumir kíktu í sólina á meðan aðrir kíktu á HönnunarMars.
Sumir kíktu í sólina á meðan aðrir kíktu á HönnunarMars. Samsett/Instagram

Mæðradagurinn var í gær og voru Íslendingar duglegir að senda kveðjur á mömmur sínar. Sumir nýttu helgina í að kíkja á HönnunarMars á meðan aðrir skelltu sér til Rómar eða Las Vegas. 

Auðunn Blöndal fagnaði afmæli yngri sonar síns um helgina sem er búinn að halda uppi stuðinu síðasta árið.

Eurovision systurnar eru með þau fallegu skilaboð að við erum öll mennsk þar sem þær eru staddar í Tórínó og munu keppa í fyrri undankeppninni á sunnudaginn.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir var alsæl með vel heppnaðan HönnunarMars.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir tók þátt í sýningunni „In Bloom“ hjá Hildi Yeoman á HönnunarMars sem var haldin í Höfuðstöðinni.

Söngkonan Bríet sá um að skemmta fólki um helgina og virðist njóta sín vel á sviðinu en hún verður með tónleika í Eldborgarsal Hörpu undir lok mánaðarins.

Reykjavíkurdætur hituðu upp fyrir Khalid á miðvikudaginn í Laugardalshöllinni og var rífandi stemning.

Elísabet Gunnarsdóttir fagnaði sínum 35 árum.

Hún átti ekki aðeins afmæli heldur fékk hún einnig stóran draum uppfylltan, að kynnast stóru fyrirmyndinni Vigdísi Finnbogadóttur.

Birgitta Líf hélt upp á að tíu ár eru liðin síðan hún útskrifaðist úr Verzló.

Júlí Heiðar fagnar mæðradeginum með fallegri kveðju til Þórdísar Bjarkar, unnustu sinnar sem hann trúlofaðist fyrir viku síðan en móðir hans fékk einnig ljúf orð.

Parið Sunneva Einarsdóttir og Benedikt Bjarnason nutu lífsins í Róm og aldrei að vita nema þau hafi kastað mint í gosbrunninn góða.

Þær Ingileif og María Rut eru engar venjulegar mömmur heldur svalar mömmur og fögnuðu mæðradeginum saman.

GDRN er spennt að stíga inn í stóra hlutverkið og fagnar mæðradeginum með gullfallegri mynd. 

London var að kalla á Begga Ólafs sem svaraði kallinu.

Svala Björgvinsdóttir var þakklát fyrir mömmu sína á mæðradraginn líkt og alla aðra daga.

Tónlistarkonan Hildur passar að allt sé í stíl þar sem hún vinnur að nýrri tónlist.

Bassi Maraj segist hafa kíkt aftur í skápinn á Prag. 

Binni Glee skellti sér líka í höllina í Prag ásamt Bassa.

Kallakórinn Bartónar er mættur til Berlínar þar sem þeir plotta heimsyfirráð.

Crossfit stjarnan Annie Mist fagnar því að vera í svalasta klúbbnum, mömmuklúbbnum.

Dansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir skín alltaf skært á dansgólfinu ásamt Nikita Bazev en þau voru að keppa á The Blackpool Tower mótinu.

Þingmenn risu allir úr sætum fyrir Zelensky í kjölfar ávarps hans til þjóðarinnar.

Bubbi skellti í eina frábæra OOTD mynd sem veitir öðrum eflaust mikinn innblástur.

Jóhanna Helga var í stuði á föstudaginn.

Áslaug Arna er ánægð með nýtt húsnæði fyrir Listaháskóla Íslands.

Helgin var stútfull af nostalgíu hjá Hreim og Birgittu sem tóku aldamótatónleika gigg á Hilton.

Söngkonan Þórunn Antonía fór í gegnum sitt magnaða ferðalag sem móðir.

Rúrik er á fullu að vinna í Bucket listanum sínum.

Parið Andrea Röfn og Arnór Ingvi skelltu sér á stefnumót í Boston þar sem þau eru búsett.

Áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir var að vinna með hafmeyju víbrur um helgina.

Förðunarfræðingurinn Ingunn Sigurðardóttir er ennþá að ná sér niður á jörðina eftir opnunarpartý RMS sem haldið var síðustu helgi.

Leikstjórinn Baldvin Z heiðraði konurnar í sínu lífi á mæðradaginn með þessum fallegu myndum. 

Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir heiðraði einnig móður sína og birti dýrmætar myndir af fjölskyldunni sinni.

Eurovision snillingarnir Friðrik Ómar og Selma Björnsdóttir voru stórkostleg í bleiku og eru mjög til í keppnina sem haldin verður næstu helgi.

Sólborg Guðbrandsdóttir, eða Suncity, fór á rúntinn með kærasta sínum sem hún segir sinn besta vin.

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr stefnir á að taka Norður Ameríku með trompi en forsala á tónleikaferðalagið fer í gang á morgun. 

Fjölmiðlakonan Hugrún Halldórsdóttir fagnar afmælinu sínu í Bangkok ásamt fríðu föruneyti.

Förðunarfræðingurinn og TikTok stjarnan Lilja Dís var vel dressuð og tilbúin í aðalkvöldið hjá sér um helgina.

Of Monsters and Men söngkonan Nanna Bryndís átti afmæli og hljómsveitin gaf henni eitt stórt hipp hipp húrra!

Þjálfarinn og dansarinn Sandra Björg fékk dansarann og fasteignasalann Töru Sif í heimsókn til Los Angeles þar sem hún er búsett. Þær skelltu sér svo í ferð til Las Vegas og böðuðu sig í sólinni.

Gummi Kíró og Lína Birgitta voru glæsileg á röltinu en Gummi hleypti einmitt Sindra Sindrasyni inn í fataskápinn sinn í Ísland í dag í gær þar sem mátti finna margar gersemar.

Grínistinn Eva Ruza opnaði sig um það að taka áhættuna og elta drauminn og er í kjölfarið að lifa sínu allra besta lífi.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Ítalía, barneignir og árshátíð í höll

Það birtir svo sannarlega yfir skemmtanalífi landsins með hækkandi sól svo mikið er um að vera hjá listamönnum landsins. Systurnar eru mættar til Tórínó þar sem þær munu keppa í Eurovision og margir virðast vera að skella sér til útlanda. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×