Atvinnulíf

Langaði eitt sinn alltaf að vera jafn gordjöss og Palli

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jóhannes Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Eurovisjón áhugamaður segir að eitt sinn hafi hann einna helst séð fyrir sér að líkjast Páli Óskari en það hafi ekki verið vegna neinna líkinda heldur frekar að hann hafi viljað pallíetturnar hans Palla og að vera jafn gordjöss hann. Í dag segir hann raunhæfara að líkja sér við hinn sænska ballöðubolta Engelbert Humperdinck.
Jóhannes Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Eurovisjón áhugamaður segir að eitt sinn hafi hann einna helst séð fyrir sér að líkjast Páli Óskari en það hafi ekki verið vegna neinna líkinda heldur frekar að hann hafi viljað pallíetturnar hans Palla og að vera jafn gordjöss hann. Í dag segir hann raunhæfara að líkja sér við hinn sænska ballöðubolta Engelbert Humperdinck. Vísir/Vilhelm

Jóhannes Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það ákveðnar gæðastundir að hrista börnin fram úr rúminu á morgnana þótt allir séu þá hálf sofandi og úrillir. Enda gangi mjög líklega B-mennskan í erfðir.

Í vinnunni hentar Jóhannesi best skipulagt kaós-skipulag en þar þarf hann oft að bregðast við aðstæðum með stuttum fyrirvara.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Yfirleitt um klukkan sjö til hálf átta. Er B maður og uni mér betur á kvöldin og nóttunni, þótt miðöldrunin geri nú atlögu að því lífsmynstri.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég skrölti svefndrukkinn niður stigann og ýti við menntaskólanemanum sem þarf að komast í strætó á Ásbrú upp úr átta. 

Í gegnum tíðina hefur oft verið öruggasti tími dagsins hjá mér til að ná rólegri stund með börnunum að hrista þau fram úr rúminu á morgnana. 

Mér þykir ósköp vænt um þessar stundir þótt við höfum iðulega öll verið hálfsofandi og úrill. B-mennska gengur augljóslega í erfðir.“

Ef þú værir frægur Eurovision-söngvari, við hvern myndir þú helst líkja þig við?

Á yngri árum hefði ég mögulega sagt Páll Óskar, en það er nú meira af því að mig langar alltaf svo mikið að eiga öll pallíettufötin hans og vera jafn gordjöss, en því að ég líkist honum. 

Eftir því sem maður eldist neyðist ég hins vegar til að viðurkenna að sennilega væri ég líkari Engelbert Humperdinck, svona rólegur ballöðubolti sem rúllar pollsvalur með sænska klassík inn í næst síðasta sæti.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Verkefnin eru ansi mörg og fjölbreytt, sem er gaman og heldur manni alltaf á tánum. Það sem tekur hvað mestan tíma þessa dagana er verkefni sem tengist áhrifum ferðaþjónustu á sveitarfélög og hvernig verðmætasköpun í greininni skiptist milli landshluta.

Í því verkefni hefur það verið töluverð áskorun hversu slök gagnaöflun er um þessa atvinnugrein og áhrif hennar á samfélagið. 

Það er þörf á miklu átaki í þeim efnum, en þetta verkefni okkar ætti að hjálpa sveitarstjórnarfólki um allt land að átta sig á mikilvægi ferðaþjónustunnar og tækifærum í þeirra heimabyggð.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég er nú ekki skipulagðasti maður veraldar sko. Þetta starf er rosalega fjölbreytt, enginn dagur eins í raun, mikið af vinnunni gengur út á samskipti við fólk og stóran hluta er ekki hægt að skipuleggja langt fram í tímann.

Það eru ákveðin föst verkefni sem ég reyni að hafa á föstum tímum í vikunni eða mánuðinum, annað endar á todo listanum, alarminu í símanum, gulu miðunum á tölvuskjánum eða töflunni á skrifstofunni.

Skipulagið sem hentar mér best hefur alltaf verið skipulagt kaos. Það hentar vel í starfi þar sem þarf að bregðast hratt við. Það er líklega ekki alveg eins þægilegt fyrir fólkið sem þarf að vinna með mér hins vegar.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Yfirleitt um eða upp úr miðnætti. Stundum seinna, til dæmis þegar ég hef þurft að taka vinnurispur inn í nóttina. En hin síðari ár hefur reynst þörf á lengri fegurðarblundum en áður svo B mennskan hefur gefið eftir.“


Tengdar fréttir

„Amma mín á Akureyri gerði heimsins bestu kjötsúpu“

Með tvö lítil börn er ekki laust við að bensínið sé búið um tíuleytið á kvöldin segir Salóme Guðmundsdóttir, stjórnarkona og sérfræðingur í nýsköpun sem um þessar mundir er í fæðingarorlofi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×