Innlent

Brynjólfur leiðir lista Flokks fólksins á Akur­eyri

Árni Sæberg skrifar
Frá vinstri: Tinna Guðmundsdóttir, Jón Hjaltason, Brynjólfur Ingvarsson, Málfríður Þórðardóttir, Hannesína Scheving.
Frá vinstri: Tinna Guðmundsdóttir, Jón Hjaltason, Brynjólfur Ingvarsson, Málfríður Þórðardóttir, Hannesína Scheving. Aðsend/Flokkur fólksins

Brynjólfur Ingvarsson, geðlæknir, skipar fyrsta sæti á lista Flokks fólksins í Akureyrarbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Í öðru sæti er Málfríður Þórðardóttir, ljósmóðir. Þriðja sæti skipar Jón Hjaltason, sagnfræðingur og Hannesína Scheving, bráðahjúkrunarfræðingur, það fjórða. Í fimmta sæti listans er Tinna Guðmundsdóttir, sjúkraliðanemi.

Helstu áherslur Flokks fólksins fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akureyri eru málefni eldri borgara, öryrkja og þeirra sem minna mega sín, skipulagsmál, fjármál Akureyrarbæjar, skólamál, íþróttir og listir, að því er segir í tilkynningu flokksins.

Listi Flokks fólksins í Akureyrarbæ:

  1. Brynjólfur Ingvarsson, geðlæknir
  2. Málfríður Þórðardóttir, ljósmóðir
  3. Jón Hjaltason, sagnfræðingur
  4. Hannesína Scheving, bráðahjúkrunarfræðingur
  5. Tinna Guðmundsdóttir, sjúkraliðanemi
  6. Ólöf Lóa Jónsdóttir, eldri borgari
  7. Halla Birgisd. Ottesen, forstöðumaður Frístundarmála
  8. Arlene Velos Reyers, verkakona
  9. Theódóra Anna Torfadóttir, verslunarkona
  10. Skarphéðinn Birgisson, hárgreiðslumaður
  11. Ásdís Árnadóttir, ferðafræðingur
  12. Jónína Auður Sigurðardóttir, leikskólakennari
  13. Guðrún J Gunnarsdóttir, húsmóðir
  14. Sigurbjörg G Kristjánsdóttir, fiskverkakona
  15. Margrét Ásgeirsdóttir, leiðbeinandi
  16. Helgi Helgason, málmsuðumaður
  17. Hörður Gunnarsson, sjómaður
  18. Gísli Karl Sigurðsson, eldri borgari
  19. Egill Ingvi Ragnarsson, eldri borgari
  20. Sveinbjörn Smári Herbertsson, iðnfræðingur
  21. Birgir Torfason, sölumaður
  22. Hjörleifur Hallgríms Herbertsson, framkvæmdarstjóri og eldri borgari


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×