Erlent

Segir Úkraínumenn tilbúna fyrir átökin: „Við munum berjast“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Úkraínskar hersveitir reyna nú að halda aftur af Rússum í austurhluta landsins, þar á meðal Kharkív. 
Úkraínskar hersveitir reyna nú að halda aftur af Rússum í austurhluta landsins, þar á meðal Kharkív.  AP/Felipe Dana

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að baráttan um Donbas sé hafin en aukinn þungi hefur færst í sókn Rússa í austurhluta landsins í dag. Forsetinn sagði að Úkraínumenn munu halda áfram að berjast og það væri aðeins tímaspursmál hvenær þeir ná sínum svæðum aftur.

„Nú getum við sagt að rússneskir hermenn hafi hafið baráttuna um Donbas sem þeir hafa lengi verið að undirbúa sig fyrir. Stór hluti rússneska hersins beinir nú athygli sinni að þessari sókn,“ sagði Selenskí í ávarpi sínu í kvöld.

„Óháð því hversu margir rússneskir hermenn verða sendir þangað, þá munum við berjast. Við munum verja okkur. Við munum gera þetta á hverjum degi. Við munum ekki gefa eftir neitt sem er úkraínskt og við þurfum ekki eitthvað sem við eigum ekki,“ sagði hann enn fremur.

Þá sagði hann rússneska herforingja þurfa að fara varlega, í ljósi þess gríðarlega mannfalls sem rússneski herinn hefur orðið fyrir, annars verði enginn eftir til að berjast fyrir þá. Selenskí þakkaði úkraínskum hermönnum og sagði þá enn standa keika.

„Það er aðeins tímaspursmál hvenær við náum að frelsa öll svæði okkar ríkis,“ sagði Selenskí.

Reyna að komast í gegnum varnir Úkraínumanna

Oleksiy Danilov, yfirmaður þjóðaröryggis- og varnamálaráðs Úkraínu, greindi frá því í sjónvarpsávarpi í dag að rússneskar hersveitir reyni nú að komast í gegnum varnir Úkraínumanna á þremur svæðum, það eru Luhansk, Donetsk og Kharkív.

„Sem betur fer hefur herinn okkar náð að þrauka og aðeins í tveimur borgum hafa [rússneskir hermenn] komist áfram,“ sagði Danilov. „En átökin halda áfram, við munum ekki gefa upp landsvæði okkar og tilraunin til að hefja næsta virka fasa hófst í morgun.“

Andriy Yermak, yfirmaður skrifstofu Úkraínuforseta, sagði sömuleiðis fyrr í dag að „annar fasi stríðsins“ væri hafinn í Donbas en að hann hafði trú á úkraínskum hermönnum.

Sameinuðu þjóðirnar segja vopnahlé í Úkraínu ekki vera á sjóndeildarhringnum að svo stöddu en að það gæti gerst innan næstu vikna. Martin Griffiths, aðstoðarframkvæmdastjóri mannúðardeildar Sameinuðu þjóðanna, sagði það fara eftir því hvernig viðræður ganga á næstunni.

Engar öruggar borgir í Úkraínu

Alls hafa átta almennir borgarar látist í árásum Rússa það sem af er degi í Donbas. Fjórir létust í árás í Donetsk héraði auk þess sem fjórir létust í borginni Keminna í Luhansk héraði þegar borgin féll í hendur Rússa í nótt.

Árásir hafa einnig verið tilkynntar víðar í dag en í vesturhluta landsins létust sjö í Lviv í nótt og í norðurhluta landsins létust tveir í Kharkív.

Lviv er aðeins um sextíu kílómetra frá landamærum Úkraínu og Póllandi hefur þótt nokkuð örugg þar sem lítið hefur verið um átök svo vestarlega í landinu en undanfarið hafa átökin verið hvað hörðust í austurhluta landsins.

Flóttafólk hefur leitað skjóls í borginni og margir farið þar í gegn á leið sinni til Póllands. Með loftárásunum í nótt sendu Rússar skýr skilaboð um að hvernig í landinu sé öruggt að vera.

„Í dag eru engar öruggar borgir í Úkraínu. Í dag eru allir í sömu stöðu,“ sagði Andriy Sadovy, borgarstjóri Lviv, um málið í dag.

Pútín segir stefnu Vesturveldanna hafa misheppnast

Vladimír Pútín Rússlandsforseti heiðraði í dag hersveit sem var í bænum Bútsja þar sem hundrað almennir borgarar létu lífið. Stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt að stríðsglæpir hafi verið framdir þar. 

Þá sagði forsetinn í dag efnahagsþvinganir Vesturveldanna ekki hafa skilað tilætluðum árangri.

„Við getum nú sagt með fullri vissu að þessi stefna gagnvart Rússlandi hefur misheppnast. Hin efnahagslega leiftursókn virkaði ekki. Aukinheldur komust sjálfir upphafsmennirnir ekki upp með refsiaðgerðirnar,“ sagði Pútín.


Tengdar fréttir

Vaktin: Baráttan um Donbas hafin segir Selenskí

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti sagði í kvöld að baráttan um Donbas væri hafin. Hann hefur kallað eftir því að samherjar Úkraínu meðal vestrænna þjóða sendi þeim meira af vopnum. Úkraínumenn séu að gera allt til að verjast og séu í stöðugum samskiptum við samherja sína.

Ætlar ekki að gefa eftir landsvæði fyrir frið

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að ríkið muni ekki láta Rússa fá landsvæði í austurhluta Úkraínu í skiptum fyrir frið. Hann segir Rússum ekki treystandi til að standa við nokkuð samkomulag og að Úkraínumenn hefðu enga ástæðu til að trúa því að Rússar myndu ekki gera aðra atlögu að Kænugarði í framtíðinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×