Úrkynjað Ísland Íris Erlingsdóttir skrifar 7. apríl 2022 13:01 „,Þingið er umræðusamkoma einnar þjóðar með sameiginlega hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi…’ Íslensk stjórnmálamenning er vanþroskuð…og Alþingi rækir illa umræðuhlutverk sitt…“ Rannsóknarskýrsla Alþingis, bindi 8, bls. 184 Þroskastig íslenskrar stjórnmálamenningar hefur ekki staðið í stað á þeim 14 árum sem liðin eru frá þjóðargjaldþrotinu. Þvert á móti. Íslensk stjórnmálamenning hefur hnignað úr vanþroska í úrkynjun. Hið sama mætti segja um „menningu” fjölmiðlaklappstýranna. Alþingi er „vettvangur rökræðu” í þágu almennings. ”Markmið rökræðu er að lýsa upp málefni; því verður hún að byggjast á upplýsingum um staðreyndir…sá sem stundar rökræðu af heilindum leitast við að hafa það sem sannara reynist…” Rannsóknarskýrsla Alþingis, bindi 8, bls. 184 Ekki er einu sinni hægt að segja að Alþingi „ræki illa umræðuhlutverk sitt” – það hefur einfaldlega lagt það niður – svo fullkomlega að alþingismenn sjá ekkert athugavert við að skrifa skoðanagreinar til að hvetja fjölmiðla með skömmum og hótunum að brjóta gegn sjálfri Stjórnarskránni svo skjólstæðingar þingmanna móðgist ekki. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 1944 nr. 33, 17. júní, 73. gr. „Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar…Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.” Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna fræðir lesendur – vegna þess að ég „titla mig sem fjölmiðlafræðing“ – um fjórða þjóðfélagsvaldið í kennslubókardæmi um umburðarleysi sem á að vera hneyksli í lýðræðisþjóðfélögum. Jódís þykist vera gegn mismunun, en hún vill ritskoða og banna allar skoðanir sem henni mislíka og lofar „fjölmiðla sem hafa komið góðum verkum í höfn með þéttu aðhaldi [svo “þéttu” að aðeins er pláss fyrir “réttu” skoðanirnar] og opinni umræðu um krefjandi mál.” Í meðförum Jódísar er „opin umræða” refhvörf („oxymoron”) því opin umræða í lýðræðisríkjum fer að mestu leyti fram í fjölmiðlum – fjórða valdinu og „felur í sér “aðhaldshlutverk – að fjölmiðlar [verndi] borgarana fyrir misbeitingu valds –upplýsingahlutverk –...láti borgurunum í té áreiðanlegar upplýsingar og vandaða greiningu á samfélagsmálum – ogumræðuhlutverk –...séu vettvangur fjölþættrar þjóðfélagsumræðu og birti túlkanir og umræðu um málefni samfélagsins frá margvíslegum sjónarhornum. Að mörgu leyti ereinfaldast fyrir fjölmiðil að sinna síðastnefnda hlutverkinu, svo sem með því aðdagblað sé opið fyrir aðsendum greinum.” Rannsóknarskýrsla Alþingis, bindi 8, bls. 196. Þar sem Jódís titlar sig sem Alþingismann, „langar mig að nota tækifærið” og benda henni á „umræðuhlutverk” Alþingis. Rannsóknarskýrslan bendir á hvernig „flokksræðið…hefur þróast í ofurvald…foringjans og klíkunnar…[þar sem] hlutur löggjafans [verður] að afgreiða mál sem undirbúin hafa verið í klíkunni…Þannig gegnir þingið formlegu löggjafarhlutverki sínu en bæði umræðuhlutverkið og eftirlitshlutverkið eru vanrækt.” Í stað þess að hvetja til og taka þátt í skynsamlegri þjóðfélagsumræðu, velur þingmaðurinn ad hominem árásir og ræðst á mikilvægasta rétt þegnanna – rétt okkar til málfrelsis, sem er grundvöllur allra annarra réttinda. Þetta óþol og fyrirlitning frá fulltrúa Alþingis – sem er eiðsvarin að verja Stjórnarskrárvarin réttindi okkar og hefur vald til að lögfesta boð og bönn á skoðanir sem henni líkar ekki – fyrir réttindum þegnanna til málfrelsis er ógnvekjandi. Jódís titlar sig sem Alþingismann en hún er fyrst og fremst Transaðgerðasinni, enda sér hún enga ástæðu til að útskýra hvaða orð í mínum „ömurlegu skrifum” eru „hatursumræða”, „ýta undir ofbeldi”, „standa fyrir öfgastefnum” og setja „transfólk í lífshættu”. Í stað þess að rökstyðja þetta rauðsíldar-salat à la Mussolini (svo ég taki upp þráð Jódísar úr leiknum “Hver er einræðisherrann?”) gramsar hún í verkfæraskúffu TransRannsóknarréttarins (merkt “ENGIN UMRÆÐA”) og nær í mest notuðu tólin: aðdróttanir, uppnefni, rökvillur og hótanir. (Transaðgerðasinnar innan Alþingis og utan ættu að hafa í huga að á Íslandi er ærumeiðingalöggjöf hluti af Almennum hegningarlögum. Persónulega er ég málfrelsis”absolutisti” en margir Transguðleysingjar hafa ekki jafn hlýlegt viðmót til ærumeiðinga.) Það þarf ekki að koma neinum á óvart að aðalumbjóðendur Jódísar eru henni sammála um mikilvægi „opinnar umræðu.” „Trans Ísland hefur enga löngun til að rökræða raunveruleika tilvistar okkar eða að hrekja þær staðhæfingar höfundarins sem samþykktar voru af ritstjórn [Morgunblaðsins] og hleypt í prentun. Tilvist okkar er ekki álitamál og er ekki efni í rökræður.“ Sem betur fer er engin nauðsyn að rökræða neitt við Trans Ísland. Í fyrsta lagi er ekkert „álitamál” uppi um „tilvist” ykkar. Öllum er frjálst að einkenna sig eins og þeir vilja, en að kvöldi dags eru allir jarðarbúar alveg jafn hallærislega karlkyns eða kvenkyns. Í öðru lagi hvarflar hvorki að mér né öðrum Transguðleysingjum að fara í rökræður við meðlimi TransKirkjunnar; það er þýðingarlaust að eiga í rökræðum við meðlimi sértrúarsafnaða um trú þeirra. Í þriðja lagi getið þið ekki frekar en æðstu prestar TransKirkjunnar rökrætt TransHugmyndafræðina, því hún er rakalaus. Það er ástæðan fyrir því að sama hvar á hnettinum við Transguðleysingjarnir tjáum okkur um Transguðspjallið er endurtekin sama tuggan úr Transáróðursmaskínunni: „engin umræða, engin umræða.” „Þjálfa þarf gagnrýna hugsun og efla læsi borgaranna á hvers kyns áróður og innistæðulausa ímyndarsmíð.” Rannsóknarskýrsla Alþingis, bindi 8 bls. 195 „Trans“réttindabarátta er ekki mannréttindabarátta homma og lesbía í öðru veldi. Eitt er að biðja samborgarana að taka okkur eins og við erum; annað að krefjast þess að þeir taki okkur eins og við erum ekki. Hvernig tekist hefur að selja almenningi í vestrænum nútíma-lýðræðisríkjum þá hugmynd að sjálfsímyndarkreppur og ranghugmyndir háværs minnihlutahóps um grundvallaratriði mannlegrar tilveru séu mannréttindabarátta er efni í óteljandi framtíðar doktorsritgerðir. „Og fólkið gleypti við þessum samsetningi, því að Íslendingar eru allra þjóða veikastir fyrir kenningum geðbilaðra manna.” Þórbergur Þórðarson Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Hatursorðræða og fjórða valdið Lyfjafyrirtæki er að prófa lyf við krabbameini í legi og býður konum að skrá sig í lyfjarannsóknina. Ég læt skrá mig sem konu, því ég skilgreini mig sem konu. Lyfjafyrirtækið gerir athugasemd og hafnar mér. Ég fæddist vissulega í líkama konu, hef alltaf upplifað mig sem slíka en vegna heilsubrests varð að fjarlægja úr mér legið og því hefur ríkið og lyfjafyrirtækið tekið þá ákvörðun að banna mér að skilgreina mig sem konu. 27. mars 2022 08:00 Mest lesið Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
„,
Hatursorðræða og fjórða valdið Lyfjafyrirtæki er að prófa lyf við krabbameini í legi og býður konum að skrá sig í lyfjarannsóknina. Ég læt skrá mig sem konu, því ég skilgreini mig sem konu. Lyfjafyrirtækið gerir athugasemd og hafnar mér. Ég fæddist vissulega í líkama konu, hef alltaf upplifað mig sem slíka en vegna heilsubrests varð að fjarlægja úr mér legið og því hefur ríkið og lyfjafyrirtækið tekið þá ákvörðun að banna mér að skilgreina mig sem konu. 27. mars 2022 08:00
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar