Lífið

Stjörnulífið: Brunch, ferðalög og barn á leiðinni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir einstaklingar hafa gert síðustu daga.
Stjörnulífið er fastur liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir einstaklingar hafa gert síðustu daga. Samsett/Instagram

Skemmtanalífið á landinu er að lifna við og það er vor í lofti. Hér verður farið yfir það helsta af Instagram þekktra Íslendinga síðustu daga. 

Eitthvað hefur verið snert á lögfræðilegum álitamálum á veitingastaðnum Héðni á Seljavegi á laugardagskvöldið. Þar sátu saman og höfðu gaman hæstaréttarlögmaður og dómarar á öllum dómstigum. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður fór yfir málin með Benedikt Bogasyni, forseta Hæstaréttar. 

Með þeim voru einnig Símon Sigvaldason landsréttardómari, stundum nefndur Símon grimmi, og Ingi Tryggvason, dómari við Héraðsdóm Reykjaness og formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi í þingkosningunum í haust.

Elín Ey fór í myndatöku hjá ljósmyndaranum Dóru Dúnu.

Reykjavíkurdætur komu fram í Heima með Helga.

Salka Sól birti rándýra mynd af sér með Röggu Gísla frá tökudegi.

Eva Matthíasdóttir segir að Hauganes sé betri staður en Tenerife.

Heiður Ósk þáttastjórnandi Snyrtiborðsins á Vísi birti sæta mynd af sér með förðunarfræðingnum Alexander Sig. 

Leikkonurnar Aldís Amah Hamilton, Íris Tanja og María Thelma fóru saman í brunch.

Marín Manda þáttastjórnandi Spegilmyndarinnar birti myndasyrpu frá París.

Áslaug Arna kemur sér vel fyrir í Grósku.

Kristín Péturs og Haukur Már skelltu sér til Berlínar. Kristín birti nokkrar vel valdar myndir á Instagram.

Hamingjusöm Katrín Tanja er búin með undanúrslitin.

Katrín Jakobsdóttir fór á Selfoss.

Friðrik Ómar skipulagði þrenna Palla tónleika í Háskólabíó.

Palli er ákveðinn í að endurtaka leikinn á næsta ári.

Dóra Jóhanns prjónaði sjálf peysu á Kanarí fyrir brúðkaupsdaginn.

Sandra Helga notar plöntur til að fá smá frí frá sólinni í LA.

„Þetta er bara rétt að byrja,“ segir Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Kaleo fengu loksins að spila utandyra.

Sunneva Einars fagnaði fimm ára samstarfi við Marc Inbane brúnkuvörurnar.

Forsetahjónin fóru á flakk í síðustu viku.

Birgitta Líf skálaði fyrir helginni.

Björn Boði bróðir hennar birti af sér speglasjálfu.

Andrea Röfn tilkynnti að hún á von á öðru barni, eins og fjallað var um á Vísi fyrir helgi.

Sigga Eyþórsdóttir birti á Instagram flotta mynd af þeim systrum eftir Helga Ómarsson, sem birtist í umfjöllun Lífsins um klæðaburð keppenda í Söngvakeppninni. 

Sunnudagar eru handboltadagar hjá Elísabetu Gunnars.

Pattra hélt upp á 13 ára sambandsafmæli með ástinni sinni.

Ragga Hólm féll inn í umhverfið á Alicante.

Elísabet Alma og Helga í Listvali halda uppboð til styrktar Úkraínu.

Camilla Rut setur nýju fatalínuna sína í sölu á fimmtudag.

Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi eru byrjaðar með nýtt hlaðvarp sem kallast Eftirmál. 

Ólöf Tara er bad bitch og gella.

Tanja Ýr fór út á lífið í London.

Eva Ruza fór á handboltamót í Eyjum.

Jón Daði birti mynd frá landsleiknum um helgina.

Melkorka Ýr er í Barcelona. 

Beyoncé klæddist gulu á Óskarnum í nótt. Jú vissulega er Beyoncé ekki þekktur Íslendingur og ekki heldur í heimsókn á Íslandi. En í þetta eina skipti gerum við undantekningu fyrir þessa drottningu Lífsins. Beyoncé fær því sérstakt heiðurspláss í stjörnulífi vikunnar.


Tengdar fréttir

Andrea Röfn og Arnór Ingvi eiga von á öðru barni

Hjónin Andrea Röfn Jónasdóttir og Arnór Ingvi Traustason tilkynntu í dag að þau eiga von á sínu öðru barni með því að birta sónarmyndir á Instagram. Þau eru búsett í Boston þar sem Arnór spilar fótbolta í MLS deildinni.

Íslensk hönnun, vintage flíkur og skrjáfandi jakki á Söngvakeppninni

Það fór varla framhjá neinum að Söngvakeppnin var haldin hátíðleg á dögunum þar sem þær Ey systur fóru með sigur á hólmi mörgum til mikillar ánægju. Keppendur voru hver öðrum glæsilegri og þar sem ég var á staðnum nýtti ég tækifærið og fékk að gluggast í hverju keppendur klæddust. 

Neyðarsöfnun til Úkraínu í gegnum listaverka uppboð

Myndlistargalleríið Listval stendur nú fyrir listaverka uppboði þar sem allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til neyðarsöfnunar Þroskahjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Uppboðið hófst í gær og stendur til 31. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×