Innlent

Sjö­tíu sjúk­lingar með Co­vid-19 nú á Land­spítala

Atli Ísleifsson skrifar
Tvær konur með Covid-19 hafa látist á Landspítalanum síðustu tvo daga.
Tvær konur með Covid-19 hafa látist á Landspítalanum síðustu tvo daga. Vísir/Vilhelm

Sjötíu sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19 og fækkar þeim um tólf milli daga. Fjórir eru á gjörgæslu, þrír þeirra í öndunarvél.

Frá þessu segir í tilkynningu á vef Landspítalans. Meðalaldur innlagðra sem eru með Covid-19 er nú 74 ár.

Þar segir ennfremur að kona á sjötugsaldri með Covid-19 hafi látist á spítalanum í gær. Þá lést kona á tíræðisaldri með Covid-19 á þriðjudaginn. 87 hafa látist á Íslandi vegna Covid-19 frá upphafi heimsfaraldursins samkvæmt tölum á síðunni covid.is.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×