Innlent

Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig, VG dalar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi á sama tíma og annar samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn VG, tapar fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi á sama tíma og annar samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn VG, tapar fylgi. Vísir/Vilhelm

Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig mestu fylgi á milli mánaða samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu. Vinstri græn er eini stjórnarflokkurinn sem tapar fylgi á milli skoðanakannana.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 24,5 prósent fylgi. Mælist flokkurinn því með litlu meira fylgi en í alþingiskosningunum í september, þegar flokkurinn hlaut 24,4 prósent atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig frá síðustu könnum Maskínu í febrúar, þegar flokkurinn mældist með 21,9 prósent fylgi.

Píratar bæta einnig við sig en þeir mælast nú með 13,7 prósent fylgi og er nú þriðji stærsti flokkur landsins. Í febrúar mældust Píratar með 10,3 prósent fylgi. Flokkkurinn hlaut 8,6 prósent atkvæða í kosningunum í haust.

Maskína hefur mælt fylgi flokkanna síðustu mánuði og má sjá samanburð í grafíkinni hér að neðan.

Framsókn bætir einnig lítillega við sig fylgi á milli mánaða. Flokkurinn mælist nú með 17,2 prósent fylgi, bæting upp á 0,3 prósentustig á milli mánaða. Flokkurinn er á um það bil sama stað og í kosningunum þegar hann hlaut 17,3 prósent atkvæða.

Fylgi þriðja stjórnarflokksins, Vinstri grænna, dalar í nýjustu könnum Maskínu. Flokkurinn mælist með 9,3 prósent fylgi en hann mældist með 12,9 prósent í könnum Maskínu í febrúar og hlaut 12,6 prósent atkvæða í kosningunum í haust.

Samfylkingin fer einnig niður á milli mánaða og mælist flokkurinn nú með 12,1 prósent fylgi, en mældist með 13,4 prósent í febrúar. Flokkurinn hlaut 9,9 prósent atkvæða í kosningunum í haust.

Píratar, flokkur Björns Levís Gunnarssonar þingmanns, bætir við sig fylgi.Vísir/Vilhelm

Viðreisn og Flokkur fólksins tapa einnig fylgi á milli mánaða. Viðreisn mælist með 8,5 prósent fylgi en var með 9,7 prósent fylgi í febrúar. Flokkurinn er á sömu slóðum og í kosningunum í haust þegar flokkurinn hlaut 8,3 prósent atkvæða.

Flokkur fólksins mælist með 7,1 prósent fylgi og tapar 0,5 prósentustigum á milli mánaða. Flokkurinn hlaut 8,8 prósent fylgi í kosningunum.

Miðflokkurinn bætir lítillega við sig en mælist enn undir fimm prósenta markinu. Fylgi flokksins er 4,3 prósent og bætir hann við sig 0,4 prósentustigum á milli mánaða. Flokkurnn hlaut 5,4 prósent atkvæða í kosningunum.

Sósíaslistaflokkurinn mælist með 3,4 prósent fylgi og bætir við sig 0,1 prósentustigi á milli mánaða. Flokkurinn hlaut 4,1 prósent atkvæða í kosningunum í haust.

Spurt var hvaða flokk fólk myndi kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Könnunin fór fram dagana 17. febrúar til 9. mars og voru svarendur 2.333 sem tóku afstöðu. Könnunin var löðg fyrir Þjóðgátt Maskínu sem er þjóðhópur fólks sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá á netinu. Svarendur eru fólk hvaðanæva af landinu en allir átján ára og eldri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×