Innlent

Yfir 29 þúsund fiskar og nokkrir fuglar drápust í ó­veðrinu á Reykja­nesi

Eiður Þór Árnason skrifar
Dauðir fiskar í Stóru Sandvík.
Dauðir fiskar í Stóru Sandvík. Hafró/Svanhildur Egilsdóttir

Talið er að yfir 29 þúsund fiskar hafi drepist í óveðrinu sem gekk yfir aðfaranótt þriðjudags í Stóru Sandvík á vestanverðu Reykjanesi. Þá er talið að fuglar sem fundust í fjörunni hafi drepist af völdum óveðursins.

Síðdegis á þriðjudag bárust stofnuninni fréttir af því að mikið hefði rekið af fiskum upp í Stóru Sandvík og á miðvikudagsmorgun mátu starfsmenn magn fisks í víkinni sem er um kílómetra löng. 

Frá þessu er greint á vef Hafrannsóknarstofnunar en í ljós kom að aðallega var um tegundina litla karfa að ræða, alls um 29 þúsund fiska sem voru á bilinu á bilinu 5 til 23 sentímetrar að stærð. Telur stofnunin þar um lágmarksfjölda að ræða þar sem sandur hafði fokið yfir eitthvað af smæsta fiskinum.

Auk litla karfa fundust um 140 ljóskjöftur, tvær keilur, þorskur, ufsi, spærlingur og marsíli. Auk fiskanna voru í fjörunni nokkrir nýlega dauðir fuglar; fimm súlur, tvær langvíur, fýll og æðarfugl.

Við Garðskagavita sást mikið upprót af þara og nokkrir tugir af litla karfa. Einnig fréttist af litla karfa í fjörunni í Sandgerði, við Sandhöfn norðan Hafnabergs og við Ísólfsskála við sunnanvert Reykjanes.

Að sögn stofnunarinnar er hægt að fullyrða að rekinn sé ekki af völdum brottkasts því mest um sé að ræða það smáa fiska að þeir koma ekki í veiðarfæri fiskiskipa.

Litli karfi sést ofar á myndinni og ljóskjafta fyrir neðan.Hafró



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×