Síðustu átta dagar hafa verið Anníe Mist erfiðir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2022 09:32 Anníe Mist Þórisdóttir með Freyju Mist sinni. Instagram/@anniethorisdottir Anníe Mist Þórisdóttir mælir með því að sleppa því að fá kórónuveiruna en hún greindi frá því að hún og fjölskyldan hafi fengið Covid-19 í síðustu viku.
Anníe Mist fann ekki mikið fyrir kórónuveirunni en aðra sögu er að segja af manni hennar Frederik Ægidius og dóttur hennar Freyju Mist. „Síðustu átta dagar hafa verið erfiðir. Frederik Ægidius og Freyja fengu bæði Covid. Ég var neikvæð í nokkra daga en ákvað svo auðvitað að vera bara með þeim og fá veiruna líka,“ skrifaði Anníe Mist Þórisdóttir á Instagram síðu sína. View this post on Instagram A post shared by Annie Thorisdottir (@anniethorisdottir) „Af einhverjum ástæðum þá gerði ég lítið úr þeim áhrifum sem þetta gæti haft á Freyju af því að hún er ung og krakkar verða vanalega ekki fyrir miklum áhrifum. Þá voru við Frederik bæði líka þríbólusett,“ skrifaði Anníe Mist. „Stelpan mín fór upp og niður í hita síðan á laugardaginn og var yfir í fjörutíu gráður síðustu tvær nætur. Frederik Ægidius hefur síðan verið í rúminu í viku. Ég er þakklát fyrir að hafa ekki verið með nein slæm einkenni en ég væri mikið til í að taka við öllum hennar einkennum ef ég gæti,“ skrifaði Anníe. „Ekkert kemur mér meira úr jafnvægi en að sjá mína nánustu veikjast. Ég veit að þetta er ekki hættulegt og við munum öll ná okkur en þetta er samt ömurlegt og það er óhuggulegt þegar barnið þitt er veikt,“ skrifaði Anníe. „Þegar fleiri takmarkanir og höft eru að falla úr gildi þá mæli ég með því að þú passir upp á þig og aðra. Ef þú færð veiruna vonandi verður það ekki slæmt fyrir þig. Þetta er kannski bara flensa en ég hef ekki haft gaman af síðustu viku og ég mæli sérstaklega með því að sleppa við þetta,“ skrifaði Anníe eins og sjá má hér fyrir neðan.
CrossFit Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Sjá meira