Lífið

Stjörnulífið: Tenerife, afmæli og fallhlífarstökk

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífiið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífiið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Samsett/Instagram

Söngkonan og lagahöfundurinn Þórunn Clausen nýtti sunnudagskvöldið í að horfa á nýjasta þátt Svörtu Sanda. Hún sýndi frá þessu í hringrásinni sinni á Instagram. Birna María, stundum kölluð MCBibba, átti dekurdag og skellti sér í Bláa lónið.

Donna Cruz naut lífsins í heimapartýi í góðra vina hópi um helgina. Sunneva Einars fór í skvísudinner á veitingastaðinn Lóa á laugardagskvöld með vinkonunum.

Birgitta Haukdal fór á skíði með syninum.

Eva Ruza hélt upp á afmælið sitt á föstudagskvöld, borðaði köku og skálaði í óáfengum kokteilum.

Rikki G segir að Tenerife sé svo sannarlega ekki ofmetinn áfangastaður. Hann er einn af þeim þúsundum Íslendinga sem dvalið hafa á eyjunni síðustu daga. 

Leikkonan Þórdís Björk er orðin dökkhærð aftur.

Tónlistarkonan Greta Salóme hefur útbúið líkamsrækt heima hjá sér og er dugleg að sýna frá æfingunum sínum á Instagram.

Eliza Reed forsetafrú var ánægð að fá loksins eintak af bókinni sinni Sprakkar í hendurnar, sem fjallað hefur verið um hér á Vísi.

Knattspyrnukonan Brynhildur Gunnlaugs heldur áfram að njóta lífsins sem TikTok stjarna í London.

Erna Kristín ætlar aldrei aftur megrun. Hún ræddi megrunarmenninguna í viðtali við Lífið á Vísi fyrir helgi.

Trendnet bloggarinn Arna Petra fór í Kjós með fjölskyldunni og umhverfið þurfti svo sannarlega engan filter. 

Þjálfarinn Arna Vilhjálms hélt upp á afmælið sitt um helgina. Hún tognaði svo illa í hálkunni í gær og hvílir sig heima í dag. 

Fegurðardrottningin Hugrún Egils, Miss World Iceland 2021, fór út að ganga með köttinn sinn.

Ferðabloggarinn og ljósmyndarinn Ása Steinars eignaðist sitt fyrsta barn eins og kom fram um helgina á Lífinu.

Hugleikur Dagsson er með puttann á púlsinum þegar kemur að skopmynd dagsins.

Vilborg Arna Gissurardóttir og Brynhildur Ólafsdóttir skelltu sér á Vatnajökul. Þær eru við æfingar fyrir göngu yfir Grænlandsjökul.

Pattra fékk óléttu „cravings“ um helgina.

Tobba Marínós eyddi helginni í safagerð fyrir veitingastað sinn, Granólabarinn. Á magninu mætti halda að margir Íslendingar ætli að taka safakúr þessa vikuna eða að minnsta kosti bæta grænum djúsum inn í mataræðið.

Hin ávalt hvatvísa Fanney Dóra klippti sjálf á sig topp um helgina. 

Rúrik Gíslason vakti athygli í dúnvesti yfir þykka dúnúlpu á samfélagsmiðlum um helgina. Er dúnn á dún nýja „denim on denim“ trendið? 

Hanna Rún og Nikita Bazev kepptu á dansmóti á Ítalíu í gær. Þau komust í gegnum alla niðurskurði, alla leið í úrslitaumferðina og enduðu í fjórða sæti.

Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, gerði upp fríið sitt til Dubai yfir hátíðarnar hvar þau Guðlaug Elísa nutu lífsins í sól og sumaryl. Albert skellti sér í fallhlífarstökk eins og frægt er orðið.

GDRN eða Loðinn? Söngkonan Guðrún Eyfjörð minnir greinilega sjálfa sig á vinsælan karakter í Stjörnustríðsmyndunum. Chewbacca eða Loðinn, eins og hann heitir á íslensku.

Strákarnir okkar tóku nýja mynd fyrir EM. Fyrsti leikur á föstudag.

Leik- og söngkonan Selma Björnsdóttir nýtur lífsins á Tenerife þessa dagana. Hún skellti sér þangað með foreldrum sínum og dóttur en móðir hennar fagnaði 75 ára afmæli um helgina.

Birgitta Líf er einnig á Tenerife og heldur áfram að birta þaðan sólarmyndir. „Ljúfa líf.“

Hlaðvarparinn og markþjálfinn Eva Mattadóttir minnti okkur á að við erum öll venjuleg. Nýjasti þátturinn af Norminu vakti athygli á Vísi um helgina, en þar er fjallað um pressuna í byrjun árs. 

Leikkonan Unnur Eggertsdóttir er komin 30 vikur á leið. Hún hefur aldrei haft gaman af líkamsrækt en er á meðgöngunni með aðstoð TikTok og YouTube búin að finna æfingar sem hún hefur gaman af.


Tengdar fréttir

„Mikil kúnst að missa sig ekki í metnaðinum“

Nýju ári fylgir nýtt upphaf og þá er algengt að fólk setji sér markmið. Þó svo að markmið megi vera háleit, þá er mikilvægt að þau séu raunhæf. Margir kannast sjálfsagt við það að falla í þá gryfju að ætla sér of mikið á nýju ári og gefast upp á markmiðum sínum þegar líður á janúar.

Ís­lensku sprakkarnir í bók Elizu Reid

Eliza Reid, forsetafrú Íslands, gaf út bókina Sprakkar fyrir jólin. Í bókinni fjallar Eliza um stöðu sína, segir frá sjálfri sér og lýsir fjölbreyttum aðstæðum sem hún hefur lent í sem innflytjandi, kona og maki. Hún fléttar þeim sögum saman við frásagnir viðmælenda sinna og rifjar auk þess upp sögur af kvenskörungum fyrri tíma.

„Þegar fólk er hvatt til þess að borða minna en unga­börn, þá er það megrun“

„Það er rosalega mikil áhersla á að fólk taki sig saman í andlitinu eftir hátíðirnar, eins og maður hafi verið að gera eitthvað af sér með því að hvílast og njóta með fólkinu sem maður elskar. Janúar er mánuðurinn sem óraunhæfar væntingar brotna og margir upplifa sig ekki nóg,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur, rithöfundur og fyrirlesari í samtali við Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×