Innlent

147 greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa 19.708 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári.
Alls hafa 19.708 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

147 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 53 af þeim 147 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 36 prósent. Er hlutfallið mun lægra en verið hefur síðustu daga. 93 voru utan sóttkvíar, eða 64 prósent.

Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 1.390 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 1.350 í gær. 2.442 eru nú í sóttkví, en voru 2.262 í gær. 146 eru nú í skimunarsóttkví.

Nítján smit kom upp á landamærunum í gær – níu virk smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki tíu.

Fjórtán eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsum á landinu vegna COVID-19, sami fjöldi og í gær. Þá eru þrír á gjörgæslu, líkt og í gær.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 462,0, en var 454,0 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 30,0 samanborið við 28,1 í gær.

Alls hafa 19.708 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 36 andlát verið rakin til COVID-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.728 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 1.426 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 674 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Þá voru 281 sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×