Formúla 1

Bróðir Lewis Hamilton segir FIA vera til skammar og fékk „like“ frá Usain Bolt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lewis Hamilton fékk mikið hrós fyrir hvernig hann tók svekkjandi tapi með mikilli reisn.
Lewis Hamilton fékk mikið hrós fyrir hvernig hann tók svekkjandi tapi með mikilli reisn. EPA-EFE/KAMRAN JEBREILI

Lewis Hamilton missti heimsmeistaratitilinn í formúlu eitt um helgina til Max Verstappen eftir dramatískan og umdeildan lokakafla þar sem Verstappen komst fram úr honum á síðasta hringnum.

Hamilton hafði orðið heimsmeistari fimm ár í röð oftast með yfirburðum en rétt missti nú af titlinum eftir æsispennandi keppni. Hann sýndi mikla stillingu í viðtölum eftir keppni og framkoma hans var til mikillar fyrirmyndar þrátt fyrir allt svekkelsið.

Yngri bróðir hans Nicholas lét Alþjóðlega Akstursíþróttasambandið, FIA, hins vegar heyra það á samfélagsmiðlum.

„FIA braut sínar eigin reglur sem er til skammar fyrir okkar íþrótt. Þrátt fyrir að fengið svona ósanngjarna meðferð þá var Hamilton auðmjúkur eftir tapið,“ skrifaði Nicholas. Hann kallaði bróður sinn jafnframt hinn sanna meistara.

Forráðamenn Mercedes kærðu tvær ákvarðanir mótshaldara í lokin en kærunum var báðum vísað frá. Það er þó ekki vita hvort að Mercedes liðið ætlar að áfrýja enn frekar.

„Faðir minn, maðurinn sem ól okkur upp, fór til Max og föður hans Jos og óskaði þeim til hamingju. Fólk getur sagt það sem það vill um okkur en framkoma föður míns sýnir og sannar fyrir öllu efasemdafólkinu og þeim sem hata okkur, hverjir Hamiltons feðgar eru í raun og veru,“ skrifaði Nicholas.

„Að afsanna hluti er partur af okkar DNA sem Lewis gerir á hverjum degi. Hann sýndi ótrúlega fagmennsku og háttprýði á þessari erfiðu stundu og það þrátt fyrir að íþróttin, sem hann hefur gefið svo mikið, hafi brugðist honum,“ skrifaði Nicholas.

„Ég vil óska Max til hamingju með frábært tímabil,“ skrifaði Nicholas að lokum.

Það voru margir sammála Nicholas Hamilton og einn af þeim var sjálfur Usain Bolt sem setti „like“ við færsluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×