Innlent

Ekkja og dóttir Sigurjóns taka við safninu á ný

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hlíf Bente Sigurjónsdóttir, fiðluleikari og dóttir Sigurjóns, tekur við rekstri safnsins ásamt Birgittu móður sinni.
Hlíf Bente Sigurjónsdóttir, fiðluleikari og dóttir Sigurjóns, tekur við rekstri safnsins ásamt Birgittu móður sinni.

Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara, fagnar því að náðst hafi samningur um útvistun á rekstri Listasafns Sigurjóns í Laugarnesi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gengið frá samningi við rekstrarfélag í eigu Birgittu og Hlífar dóttur Sigurjóns.

Rekstrarfélagið Gríma ehf. mun annast rekstur og listræn störf á vegum safnsins. Þar með talinn daglegan rekstur svo sem undirbúning og skipulagningu sýningarhalds, fræðslustarf, útgáfu og kynningu á verkum listamannsins á samningstímanum.

Sigurjón Ólafsson myndhöggvari var meðal helstu brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi og einn helsti portrettlistamaður sinnar samtíðar. Á langri starfsævi var Sigurjóni falið að gera fjölda opinberra verka og eru eftir mörg þekkt útilistaverk og veggskreytingar, þar á meðal lágmyndir á stöðvarhúsi Búrfellsvirkjunar, Öndvegissúlurnar við Höfða, Íslandsmerkið á Hagatorgi og styttan af séra Friðriki Friðrikssyni við Lækjargötu.

Árið 1984 stofnaði Birgitta Spur, ekkja listamannsins Listasafn Sigurjóns Ólafssonar utan um höfundaverk hans. Safnið var fært íslensku þjóðinni að gjöf árið 2012 og Listasafni Íslands falið að halda utan um það sem eina heild.

„Það er fagnaðarefni að samningur um útvistun á rekstri Listasafns Sigurjóns Ólafssonar er kominn í höfn,“ segir Birgitta Spur. Hún sagði í viðtali við Fréttablaðið fyrir rúmum tveimur vikum að hún sæi eftir því að hafa gefið safnið til íslenska ríkisins.

„Ef íslenska ríkið hefur ekki bolmagn til að hlúa sómasamlega að arfleifð Sigurjóns og hugverki mínu er það siðferðileg skylda ríkisins að skila gjöfinni, mínum eigum og heimili,“ sagði Birgitta.

En nú virðist lausn á málinu fundin.

Heildarfjárhæð samningsins er 97,5 milljónir króna eða 19,5 milljónir króna árlega á samningstímanum sem nær til fimm ára. Um er að ræða framlag vegna innri rekstrar en Listasafn Íslands leigir fasteignina af Ríkiseignum sem fer með miðlæga umsýslu hennar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×