Skoðun

Með betri á­kvörðunum sem ég hef tekið: Um sveigjan­legt nám við Há­skólann á Akur­eyri

Nökkvi Alexander Rounak Jónsson skrifar

Í umræðu á samfélagsmiðlum undanfarið hefur mikið verið rætt um fjarnám og staðnám, kosti þess og galla. Eins og það sé aðeins um tvennt að velja, annaðhvort stundarðu fjarnám eða nám á staðnum. Markmið mitt með þessum skrifum er að kynna fyrir fólki sveigjanlegt námsfyrirkomulag.

Sú fullyrðing er lífsseig að Háskólinn á Akureyri sé bara fjarnámsskóli. Það er kolrangt því hér er nefnilega í boði sveigjanlegt nám. Stúdentar ráða sjálfir hvort þeir stundi námið í sinni heimabyggð eða á Akureyri. Sumir stúdentar kjósa að halda í sína heimahaga utan Akureyrar og sinna námi sínu þar. Allir þessir stúdentar geta stundað nám við HA. Í flestum deildum skólans er það skilyrði að mæta þurfi í staðarlotur og eru flestir stúdentar sammála því að staðlotur eru með skemmtilegri upplifunum í náminu. Þá hittast allir í húsnæði skólans, leysa verkefni, þreyta próf og skemmta sér saman. Með því að gera námið sveigjanlegt er ekki haldið í þá úreltu hugmynd að þú verðir að mæta klukkan átta um morguninn í fyrirlestrasal. Það er að sjálfsögðu ekkert sem stöðvar þá ákvörðun en það er líka í boði að hlusta á þann fyrirlestur þegar líður á daginn eða vikuna, því flest allt námsefni er tekið upp og fer inn á kennsluforrit skólans. Tilgangurinn með sveigjanlegu námsfyrirkomulagi er að auka og auðvelda aðgengi að háskólanámi óháð búsetu. Þá geta stúdentar sem eiga fjölskyldu eða eru í vinnu haft sama aðgang að menntun á hæsta stigi sem og þeir sem ákveða að sækja námið á staðnum.

Ég tók þá ákvörðun fyrir rétt rúmum þremur árum að flytja norður á Akureyri. Ég hafði verið eitt ár að stunda nám við Háskóla Íslands og langaði að breyta til. Þetta var auðvitað risastórt skref en ég ákvað að taka af skarið og er þetta með betri ákvörðunum sem ég hef tekið. Á mínu fyrsta ári áttaði ég mig ekki alveg á því hvað fælist í sveigjanlegu námi. Eina námsfyrirkomulagið sem ég þekkti var staðbundið. Ég mætti samviskusamlega í kennslustundir í hverri viku og fannst það alveg magnað að sitja í stofunni með samstúdentum á staðnum og öðrum sem stunduðu námið í gegnum fjarfundarbúnað út um um allan heim.

Þarna sá ég öll tækifærin sem eru til staðar við HA og ákvað því að bjóða mig fram strax á fyrsta ári í félagsstörf til þess að gera gott starf enn betra.

Sveigjanlega námið býður upp á fjölmarga möguleika og eins og áður hefur verið nefnt er í stöðugri þróun. Umsóknum við HA hefur fjölgað verulega síðustu ár sem sýnir hversu vinsælt sveigjanlegt nám er. Ég tel því að háskólasamfélagið á Íslandi eigi að taka Háskólann á Akureyri sér til fyrirmyndar í þessum efnum, því samfélagið þarf háskóla sem eru í stöðugri þróun og tilbúnir að taka skref í nýjar áttir.

Höfundur er formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×