Innlent

Telur að fjöldi muni  leita réttar síns sama hvað verður ákveðið

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Helga Vala Helgadóttir telur að fjölmargir muni leitar réttar síns sama hver niðurstaða kjörbréfanefndar verður.Magnús Davíð Norðdahl kærir framkvæmd talningarinnar í Norðvesturkjördæmi til Alþingis í dag.
Helga Vala Helgadóttir telur að fjölmargir muni leitar réttar síns sama hver niðurstaða kjörbréfanefndar verður.Magnús Davíð Norðdahl kærir framkvæmd talningarinnar í Norðvesturkjördæmi til Alþingis í dag. Vísir

Samfylkingin virðist vera eini flokkurinn sem hefur þegar tilnefnt fulltrúa í kjörbréfanefnd til bráðabirgða. Hinir flokkarnir gera það síðar í dag. Oddviti Pirata hyggst kæra kosningarnar til Alþingis í dag. Þingmaður Samfylkingarinn segir líkur á að fjöldi einstaklinga muni leita réttar síns. 

Landskjörstjórn kemur saman í dag klukkan fjögur í dag til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir alþingiskosningarnar. 

Umboðsmönnum þeirra stjórnmálasamtaka sem buðu fram er gefinn kostur á að koma til fundarins, í húsnæði nefndasviðs Alþingis. 

Heimildir fréttastofu herma að þar verði stuðst við niðurstöður kosninganna eftir að endurtalning fór fram í Norðvesturkjördæmi þó að landskjörstjórnin hafi lýst því yfir að hún telji ekki staðfest að meðferð kjörgagna hafi verið fullnægjandi á milli talninganna.

Þá óskar þingforseti eftir tilnefningu frá þingflokksformönnum um fulltrúa í kjörbréfanefnd til bráðabirgða sem undirbýr rannsókn og fer yfir ágreiningsmál ef einhver eru varðandi alþingiskosningarnar. 

Willum Þór Þórsson starfandi þingforseti hefur sagst ætla að klára málið þannig að nefndin geti komið saman á fyrsta fundi á mánudag.

Þórunn Sveinbjarnadóttir fyrir Samfylkingu

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er Samfylkingin búin að tilnefna Þórunni Sveinbjarnardóttur í kjörbréfanefnd en hún er kjördæmakjörin í Suðvesturkjördæmi. Hinir flokkarnir ákveða sína fulltrúa síðar í dag. 

Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar segir að við valið hafi verið horft til nokkurra þátta.

„Við hugsuðum þetta aðeins og ákváðum að það væri hvorki uppbótarþingmaður sem málið varðar sem tæki sæti né heldur þingmenn Reykjavíkurkjördæma. Ástæðan er sú að þar erum við í þeirri stöðu að vera  með einstakling sem datt út af þingi og annan sem  datt inn.“ segir Helga Vala. 

Hún segir stöðuna afar flókna.

„Ég held að fjöldi einstaklinga muni leita réttar síns sama hvað kjörbréfanefnd ákveður. Við í Samfylkingunni höfum kallað til okkar sérfræðinga vegna stöðunnar í Norðvesturkjördæmi og kannski best að segja sem minnst.  Þetta er auðvitað alveg ferlegt mál og mjög alvarlegt. Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr rannsókn kjörbréfanefndar,“ segir Helga. 

Kærir til Alþingis í dag

Magnús Davíð Norðdahl Pírati ætlar síðar í dag að skila inn kæru til Alþingis vegna framkvæmdar kosningarinnar í Norðvesturkjördæmi.


Tengdar fréttir

Tveir flokkar fá ekki sæti í kjör­bréfa­nefnd

Á morgun kemur í ljós hverjir munu sitja í kjör­bréfa­nefnd Al­þingis, sem mun þurfa að leysa þá flóknu stöðu sem upp er komin eftir endur­talninguna í Norð­vestur­kjör­dæmi. Á­kall er uppi um að störf nefndarinnar fari fram fyrir opnum tjöldum.

Mjög mikil­vægt að nefndin sé hlut­laus

Starfandi for­seti Al­þingis segir mikil­vægt að kjör­bréfa­nefnd njóti trausts og sé hlut­læg. Hann telur að það yrði erfitt fyrir jöfnunar­þing­menn eða þing­menn Norð­vestur­kjör­dæmis að taka sæti í nefndinni.

Al­var­legasti mis­brestur í lýð­veldis­sögunni

Karl Gauti Hjaltason, fráfarandi þingmaður Miðflokksins, segir að þetta sé í fyrsta sinn í lýðveldissögu Íslands sem alvarlegur misbrestur hafi komið upp við framkvæmd kosninga. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, segir stöðuna vera fádæma klúður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×