Viðskipti erlent

Stórlaxinn fyrrverandi lýsir dramatískum flótta frá Japan

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Carlos Ghosn sneri við rekstri Nissan og Renault á sínum tíma, en var ákærður fyrir fjármálamisferli í tengslum við rekstur Nissan.
Carlos Ghosn sneri við rekstri Nissan og Renault á sínum tíma, en var ákærður fyrir fjármálamisferli í tengslum við rekstur Nissan. Getty/Harold Cunningham

Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, hefur nú stigið fram og lýst því í smáatriðum hvernig honum tókst að flýja undan yfirvöldum í Japan. Hann faldi sig meðal annars í hljóðfærakassa til að komast undan eftirliti á flugvelli þar sem einkaþota beið hans.

Forstjórinn fyrrverandi flúði ákærur um fjárglæpi í Japan þegar hann gekk laus gegn tryggingu en hann hafði áður setið í fangelsi. Hann flúði til Beirút í Líbanon með viðkomu í Istanbúl í Tyrklandi undir lok árs 2019.

Ljóst er að flótti Ghosn var nokkuð dramatískur en í viðtali við BBC sem birtist í dag fer hann í smáatriðum yfir það hvernig honum tókst að flýja frá Japan. Hann hafði verið í haldi yfirvalda í Japan í um eitt ár, fyrst í fangaklefa en síðar í stofufangelsi.

Kornið sem fyllti mælinn

Hann segir að skilaboð þess efnis að hann mætti ekki lengur eiga í samskiptum við eiginkonu sína í stofufangelsinu hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Augljóst er að flóttinn var þaulskipulagður.

„Það var ljóst að ég þyrfti að fela mig einhvern veginn,“ segir Ghosn í viðtali við BBC. „Eina leiðin fyrir mig til þess að fela mig var í einhvers konar tösku svo að enginn gæti séð mig.“

Segir hann að hljóðfærakassi sem yfirleitt er notaður til að þess að ferja hljóðfæri á öruggan máta á milli landa hafi snemma komið til greina sem felustaður.

Segist Ghosn hafa reynt að haga sér á eins venjubundinn hátt í aðdraganda flóttans. Hann klæddi sig í venjuleg föt og tók lest til Osaka frá Tókýó. Þar skaust hann inn á hótel þar sem kassinn beið.

„Þegar maður er í kasssanum hugsar maður ekki um fortíðina, maður hugsar ekki um framtíðina, eingöngu um það sem er að gerast á því augnabliki,“ segir Ghosn.

Eyddi einum og hálfum tíma í kassanum

Hann segist hafa verið mjög einbeittur á flóttanum, þar sem hann hafi litið á þetta sem sitt eina tækifæri til þess að losna undan yfirvöldum í Japan.

„Þetta er tækifærið, þetta má ekki klikka. Ef þetta mistekst þá er þetta búið spil. Það eina sem bíður er líf fangans í Japan,“ segist Ghosn hafa hugsað með sér í kassanum.

Kassar áþekkir þeim sem Ghosn segist hafa falið sig í.Getty/Akintevs

Hann telur sig hafa eytt um einum og hálfum tíma í kassanum, en sú stund hafi reyndar liðið á við eitt og hálft ár, að því er Ghosn segir í viðtali við BBC.

Bandarísku feðgarnir Michael og Peter Taylor aðstoðuðu Ghosn á flóttanum. Þóttust þeir vera tónlistarmenn með hljóðfæri sem þurfti að ferja í umræddum kassa. Kassinn geymdi hins vegar enginn hljóðfæri, heldur fyrrverandi stórlax úr bílaheiminum, Carlos Ghosn.

Michael Taylor á flugvelli í Tyrklandi þar sem einkaþotan millilenti á leiðinni til Líbanons, Ghosn ólst upp í Líbanon. Enginn framsalssamingur er á milli Líbanons og Japans.AP/DHA

Áætlunin heppnaðist og þegar feðgarnir og kassinn sem innihélt Ghosn komust í gegnum eftirlitið á flugvellinum var förinni haldið til Beirút, í gegnum Tyrkland. Þar hefur Ghosn haldið til en enginn framsalssamningur er á milli Líbanon og Japans.

Feðgarnir tveir voru hins vegar framseldir til Japans frá Bandaríkjunum fyrir þátt sinn í flóttanum, þar sem þeir hafa játað að hafa aðstoðað Ghosn að flýja Japan.

Lesa má frétt BBC hér.


Tengdar fréttir

Vitorðsmenn í flótta Ghosn játa sig seka

Tveir Bandaríkjamenn játuðu sig seka um að hafa hjálpað Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Nissan, að flýja Japan árið 2019. Mennirnir, sem eru feðgar, voru framseldir frá Bandaríkjunum í vor og gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi.

Japanir vísa ásökunum Ghosn á bug

Fyrrverandi stjórnarformaður Nissan bar japansk réttarkerfi þungum sökum á blaðamannafundi í Beirút í gær. Dómsmálaráðherra Japans segir þær stoðlausar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×