

Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, hefur nú stigið fram og lýst því í smáatriðum hvernig honum tókst að flýja undan yfirvöldum í Japan. Hann faldi sig meðal annars í hljóðfærakassa til að komast undan eftirliti á flugvelli þar sem einkaþota beið hans.
Tveir Bandaríkjamenn játuðu sig seka um að hafa hjálpað Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Nissan, að flýja Japan árið 2019. Mennirnir, sem eru feðgar, voru framseldir frá Bandaríkjunum í vor og gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi.
Japönsk yfirvöld ákærðu bandaríska feðga fyrir að aðstoða Carlos Ghosn að flýja land í fyrra. Mennirnir gætu átt allt að þriggja ára fangelsi yfir höfði sér. Ghosn beið réttarhalda ákærður fyrir fjárglæpi þegar hann flúði land til Líbanon.
Stjórnandi flugfélags, fjórir flugmenn og tveir flugliðar hafa verið ákærðir í tengslum við flótta Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformanns Nissan, frá Japan í desember. Sakborningarnar voru handteknir í janúar en tyrknesk stjórnvöld hafa neitað því að hafa vitað af viðkomu Ghosn í landinu.
Fyrrverandi stjórnarformaður Nissan bar japansk réttarkerfi þungum sökum á blaðamannafundi í Beirút í gær. Dómsmálaráðherra Japans segir þær stoðlausar.
Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, tjáði sig í fyrsta sinn opinberlega í dag frá því hann flúði frá Japan.
Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Carole Ghosn en talið er að hún sé með eiginmanni sínum sem flúði til Líbanons.
Garlos Ghosn, ferðaðist með lest frá Tókíó til Osaka, áður en hann flúði til Líbanon að því er fram kemur í frétt líbönsku sjónvarpstöðvarinnar NTV.
Yfirvöld í Japan hafa gefið það út að þau ætli að herða verklag í innflytjendamálum eftir ótrúlegan flótta Carlos Ghosn.
Dómsmálaráðherra Japan Masako Mori hefur fyrirskipað að rannsókn á flótta Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformann Nissan, frá landinu til Líbanon fari í hönd. Í Japan bíða Ghosn réttarhöld vegna meiriháttar misferlis í starfi.
Ekki liggur fyrir hvernig stjórnvöld í Líbanon ætla að bregðast við handtökuskipan Interpol sem þeim hefur borist.
Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri Renault og Nissan, sem flúði frá Japan til Líbanon rétt fyrir áramót, mun ekki tjá sig neitt opinberlega um flóttann fyrr en í næstu viku.
Carlos Ghosn, fyrrverandi yfirmaður Nissan og Renault, hefur flúið frá Japan þar sem hann átti fangelsisdóm yfir höfði sér og á hann að hafa óttast að fá ekki sanngjörn réttarhöld.
Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, hefur skráð sig til leiks á samfélagsmiðlinum Twitter. Hann hefur boðað til blaðamannafundar og segist forstjórinn fyrrverandi vera að undirbúa sig undir það að segja sannleikann um hvað sé "að gerast“.
Dómari féllst óvænt á að Carlos Ghosn gæti fengið lausn gegn tryggingu. Fyrri kröfum um slíkt hafði verið hafnað.
Eiginkona Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformanns Nissan, segir að honum sé haldið við grimmilegar aðstæður í fangelsi í Japan. Ghosn hefur verið ákærðir fyrir umfangsmikið fjármálamisferli í starfinu sínu hjá bílaframleiðandanum.
Carlos Ghosn er meðal annars sakaður um að hafa velt milljarðatapi af persónulegum fjárfestingum yfir á japanska bílaframleiðandann.
Carlos Ghosn er ákærður fyrir fjármálamisferli. Hann neitar sök.
Saksóknarar í Japan hafa ákært Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformann bílaframleiðandans Nissan, fyrir fjármálamisferli.
Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformaður bílaframleiðandans Nissan, sem handtekinn var í gær er grunaður um fjölmörg brot að því er japanskir fjölmiðlar hafa greint frá í gær og í dag
Stjórnarformaðurinn er sagður hafa vantalið tekjur sínar til að fela greiðslur sem hann fékk.