Heimsmarkmiðin

Málstofa um Kynslóð jafnréttis í Veröld Vigdísar

Heimsljós
Streymt verður beint frá dagskrá ráðstefnu í París þar sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnir skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í verkefninu.
Streymt verður beint frá dagskrá ráðstefnu í París þar sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnir skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í verkefninu. Gunnisal

Kvenréttindafélagið, UN Women á Íslandi, Ungar athafnakonur, Landssamband ungmennafélaga og Stígamót boða til málstofu um átaksverkefni UN Women Kynslóð jafnréttis (Generation Equality Forum). Viðburðurinn fer fram á morgun, fimmtudaginn 1. júlí kl. 15.30 –17.30 í Veröld, húsi Vigdísar.

Efnt er til málstofunnar í tilefni af ráðstefnu franskra stjórnvalda sem hefst í París í dag og stendur til 2. júlí með stuðningi stýrihóps forsætisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins um þátttöku í íslenskra stjórnvalda í verkefninu og franska sendiráðsins á Íslandi. Á málstofunni verður verkefnið kynnt og efnt til umræðna um áherslur íslenskra stjórnvalda á vettvangi þess

Streymt verður beint frá dagskrá ráðstefnunnar í París þar sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnir skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í verkefninu. Aðrir frummælendur ræða um áskoranir er varðar kynbundið og kynferðislegt ofbeldi, einkum í tengslum við aðra bylgju #metoo hreyfingarinnar hér á landi og hvaða áhrif þátttaka Íslands í verkefninu getur haft á alþjóðavettvangi. Fanney Birna Jónsdóttir, fjölmiðlakona fer með fundar- og umræðustjórn.

Kynslóð jafnréttis er alþjóðlegt jafnréttisátak sem hófst árið 2020 í tilefni 25 ára afmælis framkvæmdaáætlunarinnar frá Peking. Markmið þess er að ríki, alþjóðastofnanir, frjáls félagasamtök og einkaaðilar sameinist um úrbætur á sviðum þar sem enn hallar á konur og stúlkur í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Frönsk og mexíkósk stjórnvöld fara ásamt UN Women með yfirstjórn verkefnisins. 

Átakið er unnið á sex málefnasviðum og stýrt af aðgerðabandalögum. Íslensk stjórnvöld veita aðgerðabandalagi um kynbundið ofbeldi (Action Coalition on Gender Based Violence) forystu. Á ráðstefnunni í París kynna bandalögin sex aðgerðir sem miða að hraðari framþróun á sviði jafnréttismála til næstu fimm ára.

Nánari upplýsingar um málstofuna er meðal annars að finna á vef Kvenréttindafélagsins.

Dagskrá

  • 15:30. Mæting
  • 15:40. Kynslóð jafnréttis – Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, opnar málstofuna.
  • 15:47. Generation Equality Forum Paris – Graham Paul, sendiherra Frakklands á Íslandi ávarpar gesti.
  • 15:55. Ávarp – Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnir skuldbindingar íslenskra stjórnvalda á ráðstefnu franskra stjórnvalda í París um Kynslóð jafnréttis.
  • 16:00. Umbætur innan íslenska réttarvörslukerfisins – um skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í aðgerðabandalagi um kynbundið ofbeldi – Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri.
  • 16:10. Skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í alþjóðasamstarfi og þróunarsamvinnu – Guðrún Þorbjörnsdóttir, fulltrúi utanríkisráðuneytisins í stýrihópi um þátttöku íslenskra stjórnvalda í Kynslóð jafnréttis.
  • 16:20. Kynbundið ofbeldi á Íslandi – Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta.
  • 16:30. Samtal kynslóða – Pallborð
    • Umræðustjóri: Fanney Birna Jónsdóttir
    • Hverjar eru áskoranirnar? Hvaða árangur hefur náðst? Hvað þarf til? Önnur #MeToo bylgjan á Íslandi og aukin vitund almennings á kynbundnu ofbeldi. Hvernig er hægt að tryggja að jafnrétti nái til allra og enginn verði útundan?
    • Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, listfræðingur og aktífisti
    • Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðingur og kennari
    • Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og ritstjóri Karlmennskunnar
    • Drífa Jónasdóttir, afbrotafræðingur og verkefnastýra hjá Kvennaathvarfinu
  • 17:05. Unga fólkið og framtíðin – Eva Dröfn Hassell Guðmundsdóttir, Ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði kynjajafnréttis.
  • 17:08. Fundarlok – Tatjana Latinović, formaður Kvenréttindafélag Íslands.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×