Lífið

Bjóða upp á rafrænar kveðjur frá íslenskum stjörnum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Margrét Garðarsdóttir lögfræðingur og Eyrún Anna Tryggvadóttir frumkvöðull.
Margrét Garðarsdóttir lögfræðingur og Eyrún Anna Tryggvadóttir frumkvöðull. Boomerang

„Þann 17. júní næstkomandi verður hægt að panta rafræna kveðju á Boomerang.is frá þínum uppáhalds íslensku stjörnum fyrir allskyns viðburði eins og afmæli, útskrift, fermingu, steggjun, gæsun, mæðradag, bóndadag og svo framvegis,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu Boomerang.

Á bak við Boomerang eru meðal annars Eyrún Anna Tryggvadóttir frumkvöðull og Margrét Garðarsdóttir lögfræðingur. 

„Hugmyndin fyrir Boomerang.is vaknaði fyrir rúmu ári síðan í miðjum COVID faraldrinum. Ástandið hefur opnað ýmsa möguleika sem voru óhugsandi áður hvað varðar rafræn samskipti. Við sáum tækifæri hvað þetta varðar og þann 17. júní, á Þjóðhátíðardegi Íslendinga, opnum við dyrnar á Boomerang.is“ segir Margrét. 

Kveðjurnar bara byrjunin

Samkvæmt Eyrúnu og Margréti þá hefur Boomerang.is samið við yfir 50 af stærstu stjörnum Íslands. 

„Það hafa allir tekið gríðarlega vel í hugmyndina og þá sérstaklega fjölbreytileikann sem Boomerang.is hefur uppá að bjóða. Við höfum nú þegar samið við Ingó Veðurguð, Mugison, Ásdísi Rán, Magna Ásgeirsson, Hreim Örn Heimisson, Ásgeir Kolbeinsson, Sverri Bergmann, Siggu Beinteins, Sigga Hlö, Stefán Hilmarsson, Rikka G, Eyjólf Kristjánsson, Kristínu Ruth, Geir Ólafsson, Mikael úr Mike Show, Kristján úr Dr. Football, Einar Bárðarsson, Ívar Guðmundsson, og fleira. Við hvetjum allar stjörnur sem hafa áhuga að hafa samband á hallo@boomerang.is“ segir Eyrún Anna. 

Boomerang

„Það var mikilvægt að hanna forritið frá byrjun þannig að stjörnurnar gætu valið aðeins þær þjónustur og þá viðburði sem þau vilja taka þátt í ásamt því að stilla eigin verðskrá. Við bjóðum einnig uppá sjálfvirka reikningsgerð, ýmsa tölfræði, og almennan einfaldleika hvað varðar viðmótið sem tengir stjörnurnar okkar við einstaklinga og fyrirtæki. Bakendakerfið hefur verið í þróun síðastliðna tólf mánuði og er í fremsta flokki.“

Margrét segir að kveðjurnar séu bara byrjunin hjá fyrirtækinu.

„Að senda kveðjur er bara byrjunin. Á næstu mánuðum munum við auka þjónustuleiðir ásamt því að hefja náið starf með fyrirtækjum í að auglýsa vörur þeirra og þjónustu. Framtíðin er björt og í lok árs stefnum við fara í útrás, við höfum nú þegar fengið fyrirspurnir um að opna í tveimur löndum í Evrópu ásamt Indlandi sem er mjög spennandi tækifæri og tryggir það að hugmyndin muni halda áfram að stækka bæði á Íslandi sem og erlendis.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×