Þróttur skoraði fimm í Garðabænum annað árið í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. maí 2021 15:31 Katherine Cousins skoraði tvö mörk í Garðabænum í gær. vísir/hulda margrét Þróttur vann sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deild kvenna á tímabilinu þegar liðið sigraði Stjörnuna, 1-5, í Garðabænum í gær. Guðjón Guðmundsson fór yfir leikinn. Þetta er annað árið í röð sem Þróttarar skora fimm mörk á Samsung-vellinum. Í fyrra gerðu Stjarnan og Þróttur 5-5 jafntefli í ótrúlegum leik. Þrótturum gekk öllu betur að verja markið sitt í leiknum í gær en voru jafn hættulegar fram á við og í leiknum í fyrra. Á 16. mínútu kom Ólöf Sigríður Kristinsdóttir Þrótti yfir eftir fyrirgjöf Andreu Rutar Bjarnadóttur. Á 34. mínútu fiskaði Ólöf Sigríður svo vítaspyrnu sem Katherine Cousins skoraði úr. Staðan í hálfleik var 0-2, Þrótti í vil. Cousins skoraði sitt annað mark og þriðja mark Þróttar á 53. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Andreu. Hornspyrna Andreu skilaði aftur marki á 61. mínútu þegar varamaðurinn Lea Björt Kristjánsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Fimmta markið kom á 75. mínútu þegar Shaelen Brown skoraði eftir stungusendingu Sheu Moyer. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir lagaði stöðuna fyrir Stjörnuna á 85. mínútu þegar hún skoraði sitt þriðja mark í sumar. Lokatölur 1-5, Þrótti í vil. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Stjarnan 1-5 Þróttur Þróttur er í 4. sæti deildarinnar með sex stig en Stjarnan er í því sjötta með fjögur stig. Fimmtu umferð Pepsi Max-deildarinnar lýkur með fjórum leikjum í kvöld. Stórleikur Vals og Breiðabliks verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 18:00. Farið verður yfir 5. umferðina í Pepsi Max-mörkunum á Stöð 2 Sport 4 klukkan 22:00. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Pepsi Max-deild kvenna Stjarnan Þróttur Reykjavík Mest lesið Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira
Þetta er annað árið í röð sem Þróttarar skora fimm mörk á Samsung-vellinum. Í fyrra gerðu Stjarnan og Þróttur 5-5 jafntefli í ótrúlegum leik. Þrótturum gekk öllu betur að verja markið sitt í leiknum í gær en voru jafn hættulegar fram á við og í leiknum í fyrra. Á 16. mínútu kom Ólöf Sigríður Kristinsdóttir Þrótti yfir eftir fyrirgjöf Andreu Rutar Bjarnadóttur. Á 34. mínútu fiskaði Ólöf Sigríður svo vítaspyrnu sem Katherine Cousins skoraði úr. Staðan í hálfleik var 0-2, Þrótti í vil. Cousins skoraði sitt annað mark og þriðja mark Þróttar á 53. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Andreu. Hornspyrna Andreu skilaði aftur marki á 61. mínútu þegar varamaðurinn Lea Björt Kristjánsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Fimmta markið kom á 75. mínútu þegar Shaelen Brown skoraði eftir stungusendingu Sheu Moyer. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir lagaði stöðuna fyrir Stjörnuna á 85. mínútu þegar hún skoraði sitt þriðja mark í sumar. Lokatölur 1-5, Þrótti í vil. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Stjarnan 1-5 Þróttur Þróttur er í 4. sæti deildarinnar með sex stig en Stjarnan er í því sjötta með fjögur stig. Fimmtu umferð Pepsi Max-deildarinnar lýkur með fjórum leikjum í kvöld. Stórleikur Vals og Breiðabliks verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 18:00. Farið verður yfir 5. umferðina í Pepsi Max-mörkunum á Stöð 2 Sport 4 klukkan 22:00. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild kvenna Stjarnan Þróttur Reykjavík Mest lesið Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira