Golf

Tveir af bestu kylfingum heims miklir óvinir: Gott að búa frítt í hausnum á þér

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brooks Koepka og Bryson DeChambeau þola ekki hvorn annan.
Brooks Koepka og Bryson DeChambeau þola ekki hvorn annan. Getty/Andrew Redington

Bandarísku kylfingarnir Bryson DeChambeau og Brooks Koepka eru engir vinir og deilur þeirra eru komnar út í það að þeir eru farnir að skjóta á hvorn annan á samfélagsmiðlum.

Þetta eru tveir af bestu kylfingum heims, Bryson DeChambeau er fjórði á heimslistanum í golfi en Brooks Koepka er í sjöunda sæti.

DeChambeau og Koepka hafa aldrei verið miklir vinir en óvináttan fékk olíu á eldinn þegar DeChambeau gerði grín að vaxtarlagi Koepka í janúar 2020. Koepka svaraði með því að benda á fjóra risatitla sína en DeChambeau hefur síðan unnið sinn fyrsta risatitil.

Áður hafði Koepka gagnrýnt DeChambeau fyrir hægan leik á Northern Trust móti. Um helgina lak út myndband þar sem Brooks Koepka sást ranghvolfa augunum á meðan Bryson DeChambeau var í viðtali eftir golfhringinn sinn.

Fjörið á samfélagsmiðlunum í gær tengdist því að Bryson DeChambeau ætlar að spila með Aaron Rodgers á móti þeim Tom Brady og Phil Mickelson í The Match einvíginu í júlí. Reyndar er hægt að skrifa þetta svolítið á Tom Brady sem var að stríða þeim á samfélagsmiðlum og reyna að kveikja í þeim. Það tókst.

Koepka sendi Rodgers á Twitter: Ég finn til með þér. Ástæðan var að hann þurfti að spila með DeChambeau.

DeChambeau svaraði beint til Koepka: Það er gott að búa frítt í hausnum á þér.

Deilurnar eru heldur betur að kynda undir næsta golfmótið þar sem þeir DeChambeau og Koepka verða meðal keppenda. Það má bóka það að þeir verða settir í sama ráshóp. Það er of gott sjónvarp til þess að sleppa því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×