Lífið

Ný sýndar­veru­leika­búnaður fyrir slökkvi­liðs­menn og hitinn er ó­bæri­legur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnaður búnaður.
Magnaður búnaður.

Starf slökkviliðsmanna er eitt hættulegasta starfið og felst stundum í því að hlaupa inn í brennandi hús og bjarga fólki.

Slökkviliðsmenn þurf að æfa töluvert og þá í raunaðstæðum. Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi fékk Sindri Sindrason að kynnast nýrri tækni þar sem hægt er að æfa sig í slökkvistarfi með sýndarveruleikagleraugum.

Búnaðurinn er þannig að slökkviliðsmönnunum verður í raun mjög heitt við æfingarnar, jafn heitt og að standa inni í brennandi húsi.

Í þættinum í gær var fylgst með tveimur slökkviliðsnemum við æfingar og hvernig búnaðurinn virkar í raun og veru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×