Skilja að fjallgöngumenn á Everest vegna faraldursins Kjartan Kjartansson skrifar 9. maí 2021 14:36 Frá grunnbúðum Everest í Nepal þar sem nokkrir göngumenn hafa smitast af Covid-19 frá því seint í apríl. Vísir/EPA Kínversk yfirvöld ætla að láta koma upp línu til að koma í veg fyrir að fjallgöngumenn sem ganga á Everest-fjall frá Tíbet annars vegar og Nepal hins vegar komist í snertingu hver við aðra. Kórónuveirusmit hafa komið upp á meðal göngumanna í grunnbúðum í Nepal að undanförnu.
Samkvæmt Xinhua-ríkisfréttastofunni ætla kínversk yfirvöld að senda lítinn hóp tíbetskra leiðsögumanna upp á Everest-fjall þar sem þeir eiga að koma upp línu til að skilja göngumennina að. Ekki liggur fyrir hvort að leiðsögumennirnir eigi að vera á fjallinu til að tryggja að göngumenn sem koma hvor sínu megin upp fjallið haldi fjarlægð. Reuters-fréttastofan segir heldur ekki ljóst hvernig línan eigi að tryggja aðskilnað á tindinum þar sem mikil þröng er á þingi. Tindurinn er lítið annað en lítið snjóskafl þar sem er rétt pláss fyrir nokkra göngumenn og leiðsögumenn á hverjum tíma. Að minnsta kosti tveir Íslendingar eru nú staddir á Everest-fjalli, þeir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson. Þeir hafa verið í hæðaraðlögun í rúman mánuð en ætlun þeirra er að komast á topp Everest, hæsta fjalls jarðar, til að styrkja Umhyggju, félag langveikra barna. Þeir fara upp fjallið frá Nepal en kínversk stjórnvöld hafa ekki leyft neinum erlendum göngumönnum að klífa upp frá Tíbet frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst í byrjun síðasta árs.
Kína Nepal Everest Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira