Í þáttunum fá keppendur hvorki að vita hvað þau eiga að baka né hvað uppskriftin inniheldur, þau þurfa algjörlega að fylgja leiðbeiningum Evu í blindni. Í lokin eru kökurnar svo skoðaðar og bornar saman við köku Evu Laufeyjar, sem svo fær að velja hvor þáttakandi stóð sig betur í að baka í blindni.
Þær Tobba og Júlíana trylltust úr hlátri þegar kökurnar voru afhjúpaðar og þær fengu að sjá lokaútkomuna hjá hvor annarri. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.Í þessari klippu má sjá hvernig kökur Tobbu og Júlíönu komu út og hvor þeirra stóð uppi sem sigurvegari.
Blindur bakstur er á dagskrá á laugardagskvöldum á Stöð 2 klukkan 18:55.