Innlent

Ragnar Þór endur­kjörinn sem for­maður VR

Atli Ísleifsson skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn formaður VR árið 2017.
Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn formaður VR árið 2017. Vísir/Vilhelm

Ragnar Þór Ingólfsson hefur verið endur­kjörinn sem for­maður VR. Hann hlaut 63 prósent atkvæða. 

Þetta staðfestir Ragnar Þór í samtali við Vísi. Hann hlaut 63 prósent atkvæða, eða 6.526 atkvæði. Helga Guðrún hlaut 3.549 atkvæði, eða 34,4 prósent. 271 tók ekki afstöðu í atkvæðagreiðslunni, eða 2,62 prósent. 

Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var sú mesta í sögu félagsins, þar sem 10.346 atkvæði bárust eða frá 28,80 prósent atkvæðisbærra manna. Í heildina voru um 35 þúsund manns á kjörskrá. 

Allsherjaratkvæðagreiðslu lauk á hádegi í dag og voru frambjóðendur boðaðir á fund kjörstjórnar klukkan 14 þar sem niðurstaðan var kynnt.

Helga Guðrún Jónasdóttir bauð sig fram gegn sitjandi formanni.Vísir/Vilhelm

Sjö stjórnarmenn voru kjörnir til tveggja ára samkvæmt fléttulista eins og kveðið er á um í 20. gr. laga VR.

  • Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, 12,13 prósent
  • Jón Steinar Brynjarsson, 8,51 prósent
  • Helga Ingólfsdóttir, 8,7 prósent
  • Sigurður Sigfússon, 8,21 prósent
  • Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir, 8,1 prósent
  • Þórir Hilmarsson, 7,68 prósent
  • Harpa Sævarsdóttir, 7,96 prósent
  • Tóku ekki afstöðu, 9,98 prósent

Þrír varamenn í stjórn VR – til eins árs

  • Jónas Yngvi Ásgrímsson, 7,6 prósent
  • Sigríður (Sirrý) Hallgrímsdóttir, 7,53 prósent
  • Arnþór Sigurðsson, 6,98 prósent

Áskorun að gera öllum til geðs

Ragnar Þór segist í samtali við Vísi að hann sé ótrúlega ánægður og þakklátur nú þegar niðurstaða liggur fyrir. „Það er mjög erfitt að vera í svona risastóru stéttarfélagi þar sem hóparnir eru svo ólíkir. Það er mjög mikil áskorun að gera öllum til geðs,“ segir Ragnar Þór.

Alls voru 35.919 á kjörskrá, eða allir fullgildir VR-félagar, auk eldri félagsmanna sem hættir eru atvinnuþátttöku vegna aldurs en sem greiddu eitthvert félagsgjald á 67. aldursári og höfðu greitt að minnsta kosti fimmtíu mánuði af sextíu síðustu fimm árin áður en þeir urðu 67 ára.

Ragnar Þór og Helga Guðrúnu í Pallborðinu á Vísi í síðasta mánuði.Vísir/Vilhelm

„Vel gert hjá Ragnari og áfram VR“

Helga Guðrún Jónasdóttir segist í samtali við Vísi vera óskaplega þakklát sínu stuðningsfólki fyrir frábæra baráttu. Þá óski hún Ragnari til hamingju með sigurinn.

Segir hún stuðningsmenn sína hafa lagt á sig ómælda vinnu sem hún sé stolt af. Baráttan hafi verið flott „en þetta hefðist ekki í þetta sinn.“

Hún segir jafnframt að mestu skipti að vel gangi hjá VR. „Vel gert hjá Ragnari og áfram VR,“ segir Helga Guðrún.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

„Ég mun sjá hvað ég get gert betur“

„Ég er alveg ótrúlega ánægður og þakklátur,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson augnablikum eftir að hafa verið endurkjörinn formaður VR. Hann segist vera að melta niðurstöðuna og lesa í tölurnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×