Bílar

Maxus Euniq - Rafstrumpastrætó með sál

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Maxus Euniq.
Maxus Euniq. Vilhelm Gunnarsson

Euniq er sjö manna strumpastrætó frá Maxus, bíllinn er hreinn rafbíll. Umboðsaðili Maxus á Íslandi er Vatt ehf. Skeifunni 17.

Útlit

Almennt eru strumpastrætóar ekki fallegustu bílarnir á götum landsins, að mati blaðamanns. Euniq er þó með laglegri strumpastrætóum.

Framendinn skartar af tveimur grillum og eins og rafbíla er von og vísa þá ber hann þess merki að vera rafbíll. Hann er með bláum áherslum í grillum og í kringum loftinntök í framstuðara. Afturendi bílsins er smekklegur og afturstuðarinn er sportlegur með loftinntökum.

Farþegarými í Maxus Euniq.Vilhelm Gunnarsson

Aksturseiginleikar

Bíllinn er eðli síns vegna frekar stór. Hann er þó nokkuð lipur í akstri. Hann er nógu kraftmikill en ekki of kraftmikill. Hann er um 9,5 sekúndur í kyrrstöðu upp í 100km/klst. Það telst nokkuð gott fyrir strumpastrætó. Upplifun blaðamanns var að hér færi skemmtilegur bíll með sál.

Staða ökumanns er afar góð og yfirsýn yfir veg og nærumhverfi er fín. Sest er inn í bílinn frekar en niður í hann og því er þægilegt að ganga um Euniq.

Farangursrými í Maxus Euniq með öll sæti uppi.Vilhelm Gunnarsson

Notagildi

Strumpastrætó er einna helst notaður af fólki með stóra fjölskyldu, hinn sjö manna Euniq þjónar slíkum hópum vel.

Hann er rúmgóður og notadrjúgur, hægt er að renna miðbekknum fram og aftur, til að velja til um hvort fótaplássi er með mesta móti eða farangursrými.

Aftasta röðin leggst svo alveg niður í gólf, ef hún er ekki í notkun. Þá er farangursrýmið býsna gott.

Hægt er að fá bílinn með dráttarbeisli. Hann kemur með Panorama glerþaki. Hins vegar er ekki hitamælir í bílnum enn sem komið er. Samtal blaðamanns við sölumann leiddi í ljós að uppfærsla er væntanleg sem felur í sér hitamæli. Óvíst er hvenær hún kemur.

Farþegarými í Maxus Euniq.Vilhelm Gunnarsson

Innra rými

Bíllinn er smekklegur að innan. Innréttingin er þess eðlis að hlutir eru á þeim stað sem búast má við venju samkvæmt. Fyrir farþega í miðröðinni er að finna borð, sem staðsett eru aftan á bílstjóra og farþegaframsæti.

Afturendi Maxus Euniq.Vilhelm Gunnarsson

Drægni

Uppgefin drægni er 356 km á hleðslunni. Engin ástæða er til að efast um það enda fer drægni rafbíla að miklu leyti eftir ytri aðstæðum á borð við hitastig og hvernig er ekið ásamt því hvar er ekið. Munurinn getur verið afar mikill eftir því hvort ekið er innanbæjar eða út á þjóðvegum.

Rafhlaðan í Euniq er 52,5 kwh og er hann um átta klukkustundir að ná fullri hleðslu á hefðbundinni heimahleðslustöð.

Verð

Bíllinn kostar frá 6.690.000 kr.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×