Erlent

Myrti sex fjöl­skyldu­með­limi í heima­húsi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Lögregla á vettvangi morðanna í Indianapolis.
Lögregla á vettvangi morðanna í Indianapolis. AP Photo/Justin L. Mack

Sautján ára gamall drengur hefur verið ákærður fyrir morð eftir að hann skaut föður sinn, stjúpmóður, tvo ættingja sína á unglingsaldri og nítján ára gamla, þungaða konu til bana. Morðin voru framin á heimili þeirra á sunnudaginn í Indianapolis í Bandaríkjunum.

Raymond Ronald Lee Childs III var handtekinn á mánudag og hefur hann verið ákærður fyrir sex morð, með ófæddu barni konunnar meðtöldu. Barnið átti að fæðast aðeins viku eftir að þau voru myrt. Hann hefur verið ákærður sem fullorðinn maður að sögn Ryan Mears saksóknara Marion sýslu.

Childs var einnig ákærður fyrir eina morðtilraun en ungur drengur, sem einnig er ættingi hans, komst lífs af í árásinni. Childs hefur þá verið ákærður fyrir að hafa meðhöndlað skotvopn án byssuleyfis.

Að sögn Mears hafði kastast í kekki milli Childs og föður hans, Raymond Childs 42 ára, áður en hann greip til vopnsins. Að sögn Mears rannsakar lögregla það nú hvers vegna feðgarnir hafi rifist.

Raymond Childs eldri, eiginkona hans Kezzie Childs 42 ára, Elijah Childs 18 ára, og Rita Childs 13 ára voru öll úrskurðuð látin á heimilinu. Þá var Kiara Hawkins 19 ára einnig úrskurðuð látin stuttu eftir að líkin fundust en hún hafði verið flutt á sjúkrahús þar sem hún og ófæddur sonur hennar voru úrskurðuð látin þrátt fyrir tilraunir til þess að bjarga þeim. Hawkins hafði, að sögn lögreglu, verið í sambandi með aðila sem bjó á heimilinu.

Randal Taylor, lögreglustjóri í Indianapolis, sagði í samtali við fjölmiðla að í meira en áratug hafi ekki svo margir verið myrtir í fjöldamorði í borginni án þess að það tengdist skipulagðri glæpastarfsemi.

Þrátt fyrir að Childs sé enn undir lögaldri verður mál hans meðhöndlað líkt og hann sé fullorðinn. Lög Indiana segja til um að hafi einstaklingar náð 16 ára aldri verði þeir kærðir eins og þeir séu fullorðnir ef að um alvarlegan glæp er að ræða, þar á meðal morð og morðtilraun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×