Aukinn fjöldi greinist með kynsjúkdóma Svavar Hávarðsson skrifar 10. desember 2016 07:15 Fleiri greinast með kynsjúkdóma og virðist minni notkun smokksins vera hluta skýringarinnar. Vísir/GVA
Landlæknir telur ástæðu til að vekja athygli á auknum fjölda þeirra sem greinst hafa á undanförnum árum með kynsjúkdóma, einkum sárasótt og lekanda. Vakin hefur verið athygli á því af embættinu að það kunni að hafa verið slakað á notkun smokka við kynmök eftir að öflug meðferð við HIV-sýkingu kom fram. Sóttvarnalæknir telur mikilvægt að vekja athygli á þessari þróun, einkum meðal þeirra sem teljast til áhættuhópa. Það sem af er ári hafa greinst jafn mörg tilfelli af sárasótt hér á landi og allt árið 2015. Er það mat sóttvarnalæknis að það staðfesti aukningu á sjúkdómnum á undanförnum þremur árum. Árið 2014 greindust sautján tilfelli af sárasótt og árið 2015 greindust 24 tilfelli. Af þeim sem greinast með sjúkdóminn eru 90% karlmenn en flestir þeirra sem sýktust voru karlar sem stunda kynlíf með öðrum körlum. Af þeim sem sýktust voru flestir á aldrinum 30 til 39 ára. Á undanförnum þremur árum hefur einstaklingum sem greinst hafa með lekanda fjölgað jafnt og þétt. Á árinu 2014 greindust 38 einstaklingar, árið 2015 voru þeir 46 og það sem af er árinu 2016 hafa 68 greinst með lekanda. Flestir eru í aldurshópnum 20 til 29 ára og eru 77 prósent þeirra karlmenn. Smit tengist samkynhneigð í yfir 70 prósent tilfella það sem af er árinu 2016. Enn sem komið er tengist lekandi hér á landi ekki sýklalyfjaónæmi en víða erlendis er það vaxandi vandamál. Mánaðarlegur fjöldi þeirra sem greinst hefur með klamydíusmit á þessu ári er svipaður og á árinu 2015. Vorið 2016 greindust óvenju margir einstaklingar með HIV-sýkingu sem náði hámarki í apríl síðastliðnum. Það sem af er árinu 2016 hafa fleiri greinst með HIV-sýkingu en allt árið 2015.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira