Talsvert skortir á rannsóknir á klámi hér á landi 26. september 2012 14:29 Frá fundinum mynd/innanríkisráðuneytið
Um fimmtíu manns mættu til samráðsfundar um klám á Íslandi sem innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti efndu til síðastliðinn mánudag. Á fundinum var fjallað um klám út frá lagalegu, heilbrigðislegu og samfélagslegu sjónarhorni en til hans var boðið fulltrúum frá stofnunum, grasrótarsamtökum, þingflokkum og fræðasamfélagi, að því er segir á vef innanríkisráðuneytisins. „Katrín Anna Guðmundsdóttir kynjafræðingur hélt stutt erindi um klám og muninn á því og annars konar kynferðislegu efni. Í framhaldinu tókust fjórir hópar á við umræðuefnið út frá ólíkum sjónarhornum. Róbert R. Spanó, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, leiddi hóp sem fjallaði um löggjöf um bann við klámi og framkvæmd hennar. Þar kom meðal annars fram að brot gegn banni við klámi væru ekki í forgangi í réttarvörslukerfinu. Var því varpað fram hvort breyta þyrfti gildandi efsiákvæðum um klám og þá hvaða vandamál væru uppi við rannsókn slíkra mála. Þá var einnig rætt um samspil refsiábyrgðar á þessu sviði og tjáningarfrelsisákvæðis stjórnarskrárinnar. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, fór fyrir hópi sem fjallaði um klám í almannarýminu en í umræðum þess hóps var fjallað um þá mynd sem klám gefur af samskiptum kynjanna og hvaða áhrif óheft aðgengi að klámefni hefur á samfélagið. Undir leiðsögn Katrínar Önnu Guðmundsdóttur kynjafræðings var fjallað um klám og samfélagslega ábyrgð og leitast við að kortleggja ábyrgð framleiðenda annars vegar og neytenda kláms hins vegar. Þar var meðal annars bent á að auka verði fræðslu og forvarnarstarf í málaflokknum ásamt því að gera nauðsynlegar úrbætur í réttarkerfinu. Loks leiddi Þórarinn Viðar Hjaltason sálfræðingur hóp sem fjallaði um sálræn áhrif kláms. Þar var því velt upp hvort klámnotkun geti í sumum tilfellum þróast út í einhvers konar fíkn þar sem „neytandinn" þurfi sífellt grófara og harðara efni. Talsvert skortir á rannsóknir á klámi hér á landi og eins á þeim áhrifum sem klám hefur á einstaklinga sem það sjá. Markmiðið með samráðinu er að efna til umræðu um hvert hlutverk stjórnvalda eigi að vera þegar kemur að klámi með tilliti til dreifingar, notkunar og einstaklingsbundinna og samfélagslegra áhrifa. Þriðjudaginn 16. október næstkomandi verður haldin opin ráðstefna um klám í samvinnu við lagadeild Háskóla Íslands en ráðstefnan mun standa frá 13-17 og verður nánar kynnt á næstu dögum.,“ segir á vef ráðuneytisins.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Sjá meira