Flugferðum mun fækka um allt að 40% GRV skrifar 26. september 2012 11:17 Frá kynningu skýrslunnar í dag.
Flugferðum innanlands fækkar, kostnaður samfélagsins eykst og fjölbreytni í menningarlífi landsins verður einhæfara ef miðstöð innanlandsflugs verður flutt frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkur. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu sem ráðgjafarfyrirtækið KPMG hefur unnið fyrir sex sveitarfélög á landsbyggðinni. Í skýrslunni er aðeins horft til tveggja kosta, að innanlandsflugið verði áfram í Reykjavík eða að starfsemin flytjist til Keflavíkur. Skýrsluhöfundar segja að fækkun flugferða nemi allt að fjörutíu prósentum á einstökum flugferðum og að flugferðum á þessum leiðum fækki úr þrjátíu og sjö í átján á dag. Í skýrslunni er því einnig fram að við flutninginn muni flug til Ísafjarðar, Hornafjarðar og Vestmannaeyja leggjast af í núverandi mynd og að kostnaður við ríkisstyrkt flug aukist vegna fækkunar farþega. Hvað varðar ferðakostnað landsmanna mun hann samkvæmt skýrslunni aukast fyrir íbúa landsbyggðarinnar um sex til sjö milljarða á ári og þá mun kostnaður við sjúkraflug aukast og öryggi sjúklinga minnka. Flutningur flugvallarins myndi einnig kalla á endurskoðun á núverandi fyrirkomulagi stjórnsýslu landsins sem er að mestu leyti staðsett í Reykjavík. Hana þurfi að gera aðgengilegri með skipulagðri uppbyggingu á landsbyggðinni. Í skýrslunni er einnig lagt mat á áhrif flutningsins á menningu og skólastarf og sagt að fjölbreytni í menningarlífi dragist saman, erfiiðara verði að standa undir metnaðarfullu og skapandi menningarlífi á landsbyggðinni án góðra samgangna. Að auki munu starfskilyrði háskóla og annarra menntastofnana á landsbyggðinni verða erfiðari sem og uppbygging á frekara háskólastarfi. Hvað atvinnulífið varðar er fullyrt í skýrslunni að það verði einhæfara enda treysti stór landsbyggðarfyrirtæki mikið á flug. Að lokum segja skýrsluhöfundar að landsbyggðin í heild sinni verði afskekktari þegar innanlandsflugið dregst saman enda sé gott aðgengi að menningu. menntun og þjónustu einn af þeim meginþáttum sem áhrif hafi á búsetuval fólks.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira