Upplausn á Haítí 13. október 2005 14:41
Aðframkomnir íbúar Haítís reyndu í gær að brjótast inn í matvælageymslur hjálparstofnana til að verða sér úti um mat og vatn. Fellibylurinn Jeanne, sem lagði norðurhéruð Haítís í rúst fyrr í vikunni, stefnir nú á Flórída-ríki þar sem hátt í milljón manns hefur flúið heimili sín. Allt er á suðupunkti í Haíti þar sem fórnarlömb Jeannes bíða í örvæntingu eftir utanaðkomandi aðstoð. Í gær reyndu hjálparsamtök í Gonaives sem varð verst úti í flóðunum að dreifa mat, eingöngu til kvenna. Svæðið fylltist hins vegar fljótt af fólki í leit að aðstoð og þurftu friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna að nota reyksprengjur til að halda mannfjöldanum í skefjum. Algert neyðarástand er í norðurhluta Haítis og mest er aðkallandi að koma fersku vatni til íbúanna sem enn vaða um í klóakmenguðu flóðavatni. Búið er að finna lík fimmtán hundruð manna en jafnmargra er enn saknað. Fellibylurinn Jeanne er langt í frá dauður úr öllum æðum. Hann fór yfir Bahama-eyjar í dag með tilheyrandi usla en enn er ekki vitað nákvæmlega um tjón. Á morgun er svo búist við að Jeanne gangi á land við austurströnd Flórída. Þar eru íbúar orðnir langþreyttir á óveðri enda hafa þeir fengið sinn skammt, og vel það, að undanförnu.
Erlent Fréttir Mest lesið Tvær konur sluppu úr brennandi bíl Innlent Agnes Johansen er látin Innlent Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Innlent Mikill viðbúnaður vegna sjóslyss við Ísafjarðardjúp Innlent Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi Innlent „Af einhverjum ástæðum er það ávallt Degi B. Eggertssyni að kenna“ Innlent Óbreytt ástand kemur ekki til greina Innlent Brá sér í túristalíki og segir leigubílstjóra hafa okrað á sér Innlent Brúin komin upp við Dugguvog Innlent „Það er bara dýrt að vera fátækur“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir Evrópuríki leggja refsiaðgerðir á „skuggaflota“ Rússa Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Sjá meira