Lífið

Stjörnulífið: Fallegt vinasamband og einn á hóteli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Næstu vikur gætu orðið örlítið viðburðaríkari.
Næstu vikur gætu orðið örlítið viðburðaríkari.

 Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Síðustu vikur hafa verið heldur óhefðbundnar hjá Íslendingum og margir hverjir mikið til heima í samkomubanni.

Samkomubanni vegna kórónuveirufaraldursins hefur verið aflétt að hluta og sennilega bjartari tímar framundan hjá Íslendingum. En svona voru síðustu dagar hertara samkomubanns hjá íslensku stjörnunum.

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson stjörnulögmaður var eini gesturinn Hótel Tindastóls. 

Áhrifavaldurinn Bryndís Líf hefur töluvert verið í hettupeysunni síðustu vikur. 

Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Garðar Gunnlaugsson sólaði sig í íslenskri náttúrulaug.

Aron Einar skellti sér út að skokka með yngsta syninum Tristan en Aron og Kristbjörg eiga von á sínu þriðja barni í haust. 

 Birgitta Líf Björnsdóttir fór í fyrstu siglingu sumarsins. 

Svala Björgvinsdóttir óskaði kærastanum Gauta Sigurðarsyni til hamingju með afmælið. „Þessi á afmæli í dag. Elska þig.“

 Ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson birti mjög kunnuglega mynd af vinunum Bubba Morthens og Auði.

Bubbi bauð síðan tónlistarmanninum í blómkálssúpu og Hrafnhildur, eiginkona Bubba, tók góða mynd af þeim saman. Þeir eru orðnir miklir vinir þótt það sé mikill aldursmunur á þessum tveimur vinsælu listamönnum.

 

Dansdrottningin Ástrós Tryggvadóttir birti fallega paramynd af sér og kærastanum Heiðari Loga Elíassyni. Myndirnar voru teknar í myndveri þegar tökur fóru fram á Allir geta dansað sem sýndir voru á Stöð 2.

Áhrifavaldurinn og ljósmyndarinn Ása Steinars birtir flottar myndir á Instagram en hún er greinilega að ferðast innanlands um þessar mundir. Ása er heldur betur vön að ferðast um allan heim.

Salka Sól Eyfeld fann góða lýsingu fyrir sjálfu. 

Allir dagar eru eins í þessu ástandi hjá Ásdísi Rán.

Eins og margir vita sló Hafþór Júlíus heimsmet um helgina þegar hann lyfti 501 kíló í réttstöðulyftu.

Lína Birgitta tók bröns út á svölum. 

Katrín Tanja hefur ekki marga æfingafélaga um þessar mundir. 

Samfélagsmiðlastjarnan Guðrún Veiga sullaði í sig flötum bjór í Vestmannaeyjum. 

Aron Can naut sín úti í náttúrunni.

Sunneva Einars tók æfingu úti í sólinni.

Þórunn Erna Clausen skellti sér með fjölskyldunni að Seljalandsfossi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×