Tony Bennett lenti í hádeginu - einkaviðtal á Stöð 2 og Vísi Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 9. ágúst 2012 14:37 Bennett er kominn til landsins.
Tónlistarmaðurinn Tony Bennett er kominn til landsins en hann lenti í hádeginu ásamt föruneyti sínu á Reykjavíkurflugvelli. Bennett er heimsfrægur söngvari og hefur meðal annars unnið sautján Grammy-verðlaun. Færri vita þó að hann er jafnframt mikill listmálari og segist því hlakka til að skoða íslenska náttúru. Listmálarinn Everett Raymond Kinstler, sem meðal annars málar hið venjubundna málverk af forseta Bandaríkjana, er góður vinur Bennett. Hann segir Kinstler og eiginkonu hans hafa hvatt sig til að heimsækja Ísland. ,,Þau sögðu mér að taka myndavélina með mér og skissubókina mína. Um leið og ég kæmi til landsins ætti ég að fara í nokkura klukkustunda bíltúr og ljósmynda það sem ég sé," segir Bennett. Bennett lagði því af stað út á land um leið og hann lenti. Bennett segist taka mikið mark á því sem Kinstler segi, því hann hafi verið kennari hans og vinur í áratugi. ,,Það að hann hafi sagt þetta um Ísland heillaði mig. Þannig að ákváðum að Ísland yrði síðasta stoppið á tónleikaferðalaginu okkar um Evrópu." Bennett heldur tónleika í Hörpu annað kvöld. Rætt verður við Tony Bennett í einkaviðtali í Íslandi í dag, strax að loknum kvöldfréttum í kvöld. Viðtalið er sýnt á Stöð 2 og hér á fréttavefnum Vísi.
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira