Foreldrar verða boðaðir á fund 22. ágúst 2013 21:11
Foreldrar barna á leikskólanum 101 hafa margir hverjir leitað til Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar vegna ásakana um að börn hafi verið beitt ofbeldi á leikskólanum. Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvarinnar, segir málið erfitt og fyrirspurnir foreldranna ólíkar. Þá séu margir foreldrar í vandræðum með dagvistun, en ekkert laust pláss er hjá dagforeldrum á svæðinu. „Hingað hafa leitað foreldrar og hringt og óskað eftir viðtölum eða fengið almenna ráðgjöf um það hvernig þeir geti brugðist við í þessum aðstæðum. Skóla- og frístundasvið mun boða fólk á fund og við bjóðum fyrst þeim foreldrum sem eru með börn á leikskólanum núna og í kjölfarið höldum við opinn fund fyrir þá sem hafa átt börn á leikskólanum.“ Hulda Linda Stefánsdóttir, leikskólastýra 101, segir síðustu daga hafa verið sér og öðru starfsfólki afar þungbæra. Sjálf hafi hún tekið ákvörðun um að loka leikskólanum, þrátt fyrir að hafa ekki séð umrædd myndbönd, sem hún segir jafnframt að konurnar neiti að láta af hendi. „Þetta er rosalega alvarlegt mál og miklar og stórar ásakanir. Ég er náttúrlega bara búin að vera í andlegu áfalli en það sem ég get sagt er að ég hef ekki fengið að sjá þessi myndbönd. Ég vissi ekki af þeim. Þessar stelpur komu aldrei til mín með athugasemdir eða ábendingar og barnaverndarnefnd er ekki með myndböndin. Hún er sjálf með myndböndin, stelpan. Það fær enginn að sjá þetta sem er rosalega skrýtið í svona alvarlegum ásökunum.“ Rannsókn málsins er í fullum gangi hjá barnaverndaryfirvöldum en samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur málið ekki ratað á borð lögreglu.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Sjá meira