Námsmenn ósáttir við nýjar úthlutunarreglur LÍN Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 31. mars 2018 21:57
Fulltrúar námsmanna í stjórn LÍN lýsa yfir vonbrigðum með úthlutunarreglur lánasjóðsins fyrir árið 2018-2019. Af reglunum að dæma telja þeir að mennta-og menningarmálaráðherra auk meirihluta stjórnar LÍN vilji ekki koma til móts við námsmenn. Námsmenn hafi ekki hlotið þær kjarabætur sem aðrir hópar hafi fengið. Í yfirlýsingu frá fulltrúum námsmanna segir að ekki sé nóg gert fyrir námsmenn í nýsamþykktum úthlutunarreglum fyrir skólaárið. „Almennt frítekjumark LÍN breytist ekkert milli ára og ekki verður heldur gerð breyting á frítekjumarki þeirra sem koma úr námshléi,“ segir í yfirlýsingunni. Þá er sagt frá því að húsnæðiskostnaður í nýjum úthlutunarreglum taki mið af leiguverði á Stúdentagörðum þrátt fyrir að almennt leiguverð sé mun hærra og að einungis 9% stúdenta hafi aðgang að þeim. „Stúdentar eiga ekki að þurfa að sætta sig við að fá framfærslu sem er undir framfærsluþörf.“ Þrátt fyrir að margt hafi verið gagnrýnisvert við nýjar úthlutunarreglur taka fulltrúar námsmannahreyfinga í stjórn LÍN fram að því beri að fagna að stjórn LÍN hafi samþykkt að endurskoða framfærslugrunn fyrir námsmenn erlendis. Í yfirlýsingunni er það einnig gagnrýnt hvernig staðið var að breytingunum. Stjórn LÍN hafi fengið einungis klukkustund til þess að taka afstöðu til þeirra breytinga sem ráðherra vildi gera á tillögum stjórnar LÍN. Það hafi ekki verið góð vinnubrögð og síst til þess fallin að ýta undir upplýsta ákvörðun.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira