Björt framtíðarsýn fyrir lifandi og skemmtilegan bæ Anna Lára Steindal skrifar 21. maí 2014 14:48 Við í Bjartri framtíð á Akranesi leggjum áherslu að á skapa hlýlegan bæjarbrag sem umgjörð um lifandi, skemmtilegt og framkvæmdasamt mannlíf. Við viljum horfa til framtíðar og forðast skammtímalausnir sem eru jú skammgóður vermir. Við setjum markið hátt því með samhentu átaki getum við svo auðveldlega gert Akranes að bæjarfélagi sem alls konar fólk með alls konar menntun, þekkingu, reynslu, hæfileika og kunnáttu langar til og nýtur þess að búa í. Til þess að ná þessu markmiði verðum við að halda áfram að veita framúrskarandi þjónustu í skólamálum, gera enn betur í málefnum fatlaðra, nýta betur tækifæri til útivistar, leggja meiri áherslu á vistvænt samfélag og fegra og bæta umhverfið. Við þurfum að hlúa vel að öldruðum (við viljum jú endilega að fólkið sem ákveður að búa hér vilji og geti vera hér áfram þegar aldurinn færist yfir) og almennt tryggja að öllum líði vel, njóti virðingar og jafnræðis og taki virkan þátt í samfélaginu. Við trúum því að mikilvægasti réttur hverrar manneskju sé að fá að taka sjálfstæðar ákvarðanir um líf sittt og tilveru – þess vegna eiga bæjaryfirvöld að hlusta á raddir allra og virkja sem flesta til beinnar þátttöku í samfélaginu . Eitt af mikilvægusut verkefnunum sem bíður okkar er að auka fjölbreytni í atvinnulífi því næg atvinna og góðar tekjur fyrirtækja og fólks er forsenda þess að kröftugt mannlíf blómstri á Skaganum og að bæjarfélagið hafi nægar tekjur til að veita íbúnum góða þjónustu. Við megum ekki setja öll eggin okkar í sömu körfuna og veðja bara á eina eða tvær eða þrjár stórar atvinnugreinar. Fjölbreytni er lykilatriði. Í grunninn er þetta ekki flókið: Því fleiri sem búa á Akranesi og hafa góða atvinnu, því fleiri greiða útsvar á Akranesi og því digrari verða okkar sameiginlegu sjóðir. Þar með getum við ráðist í fleiri verkefni til að bæta tilveru okkar, umhverfi og samfélag. Þess vegna þurfum við að styðja vel við þau fyrirtæki sem eru nú þegar að störfum, vinna vel með þeim sem hafa áhuga á að hefja einhvers konar starfsemi á Akranesi og efla og styðja frumkvöðla, sprotafyrirtæki og skapandi greinar sem miða að því að búa til fleiri störf. Á Sementsreitnum gætum við til dæmis lagt grunn að suðupotti hugmynda og skapandi atvinnulífs með því að veita sprotafyrirtækjum og alskonar frumkvöðlum hentuga aðstöðu. Með viðmóti, góðum hugmyndum og jákvæðni geta forsvarsmenn bæjarins unnið að því að skapa frjóan jarðveg fyrir atvinnulífið. Til að ná þessu markmiðum verðum við að vera áræðin og ástunda það sem hefur verið kallað skapandi stjórnsýsla. Nýjir tímar krefjast nýrra lausna. Það þýðir að við erum reiðubúin til þess að „horfa út fyrir boxið“. Vinna með duglegu fólki sem hefur snjallar lausnir og vera ekki bundin af „allt var svo gott í gamla daga“ hugsunarhættinum. Möguleikarnir og tækifærin eru svo sannarlega til staðar! Við verðum, bara að hafa dug og þor til að grípa þessi tækifæri. Björt framtíð hefur jákvæðni dug og þor – þess vegna erum við svo góður valkostur. Vertu í liði með okkur og settu x við æ í maí! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Spilakassar í skjóli mannúðar og björgunar Alma Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traustur grunnur, ný tækifæri Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar áfengið rænir jólunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson skrifar Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson skrifar Sjá meira
Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir Skoðun
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar
Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir Skoðun