Svört starfsemi skekkir samkeppni 13. desember 2004 00:01
Eftirlitskerfi og stofnanir ríkisvaldsins þarf til að taka á svartri atvinnustarfsemi, segja forsvarsmenn verkalýðsfélaga rafiðnaðarmanna, trésmiða og tónlistarmanna. Í áliti starfshóps sem kannaði umfang skattsvika kemur fram að hættast sé við undanskotum í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, veitingarekstri og hvers kyns persónulegri þjónustu. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, segir það hafa komið fram í ályktunum verkalýðsfélaga að mjög erfitt sé að sætta sig við svarta atvinnustarfsemi þar sem fyrirtæki keppi þá ekki á jafnréttisgrundvelli. "Sum þessara einyrkjafyrirtækja hafa verið að taka til sín ófaglært fólk á einhverjum skammtímakjörum. Þetta hefur þýtt að samkeppnisstaða fyrirtækja sem hafa viljað koma fram við sitt starfsfólk með eðlilegum hætti hefur oft og tíðum verið nánast vonlaus," segir hann og bætir við að mikil umræða sé um svarta atvinnustarfsemi í Noregi og Svíþjóð um þessar mundir. Þar segir hann færast í vöxt að einyrkjar ráði verkamenn frá austantjaldslöndunum á lúsarlaunum og telur vissa hættu á að sama þróun geti átt sér stað hér. "Ef fyrirtækin komast upp með afbrigðilega hegðun vegna þess að eftirlitskerfið virkar ekki, þá halda þau henni áfram." Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Trésmíðafélags Reykjavíkur, segir stundum þrýst á iðnaðarmenn að gefa ekki upp vinnu sína, stundum vegna þess að verkbeiðendur séu með fjármuni sem "þeir eiga ekki opinberlega". Þá segir hann slíkan þrýsting hafa aukist eftir að hætt var að endurgreiða virðisaukaskatta af viðgerðum á eldra húsnæði. "En ég er nú samt þeirrar skoðunar að þetta sé orðum aukið hvað okkur varðar," segir hann, en telur að draga mætti úr svartri atvinnustarfsemi með því að endurgreiða hluta virðisaukaskatts og með virkara eftirliti með erlendu vinnuafli. Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenkra hljómlistarmanna, telur undanskot ekki meira vandamál meðal tónlistarmanna en í öðrum stéttum. "Þetta eru hlutir sem við fáum afskaplega lítið gert við. Fyrst og fremst er það náttúrlega ríkisskattstjóri sem þarf að taka á þessum hlutum. Enn sem komið er eigum við fullt í fangi með að fá menn til að borga samkvæmt kjarasamningum."
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira