Innlent

Skólagjöld í skötulíki?

Fyrir skömmu samþykkti meirihluti Alþingis frumvarp sem kveður á um að hækka skráningargjöld við Háskóla Íslands um tæp 40 prósent. Stúdentaráð hefur lengi barist gegn hækkun innritunargjalda og gagnrýndi Dagnýju Jónsdóttur harðlega fyrir að sitja hjá við atkvæðagreiðslu, en ekki greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Dagný var framkvæmdastjóri stúdentaráðs fyrir fáum árum og lagðist þá eindregið gegn hækkun skráningargjalda. Er rétt að kalla gjaldið skráningargjald? Innritunargjald í Háskóla Íslands er núna 32,500 krónur fyrir hvert ár, en hækkar upp í 45 þúsund krónur þegar hækkunin tekur gildi. Gjaldið speglar ekki aðeins kostnað við innritun í Háskóla Íslands, því það er að hluta til notað til að standa straum af rekstri skólans. Því segja stúdentar að innritunargjaldið sé í rauninni skólagjald í skötulíki sem sé með öllu óþolandi því það dragi úr jafnrétti til náms. LÍN lánar ekki Samkvæmt reglugerðum Lánasjóðs íslenskra námsmanna er gert ráð fyrir sjálfsfjármögnun stúdenta sem nemur allt að 35 þúsund krónum. Upphæðin er endurskilgreind árlega og gildir um hvort tveggja skóla- og innritunargjöld. Hingað til hafa stúdentar því ekki getað fengið lán fyrir skráningargjaldinu. Árleg endurskráning þeirra sem eru í Háskólanum fer fram í apríl en innritun nýnema er í maí og júní. Þessu hafa stúdentar mótmælt á grundvelli þess að flestir geti illa séð af peningunum á þessum tíma þar sem þeir séu ekki í fullri vinnu. Málsvörn Dagnýjar Dagný varði ákvörðun sína og segir að þegar hún hafi veitt stúdentaráði forystu hafi tilraunir til hækkunar innritunargjalda ekki verið til þess fallnar að efla rekstur skólans. Í þessu tilfelli sé sá rökstuðningur fyrir hendi að hækkun gjaldsins muni auka gæði Háskólans og verði því stúdentum til hagsbóta. Hún taldi þó að rétt væri að kalla gjaldið öðru og réttara nafni en skráningargjald og kaus því að sitja hjá við atkvæðagreiðslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×