Innlent

Siglir í sumar um Diskóflóa

Heimskautaskipið Fram kom í Reykjavíkurhöfn. Fréttablaðið/Stefán
Heimskautaskipið Fram kom í Reykjavíkurhöfn. Fréttablaðið/Stefán
Skipið Fram frá norska skipafélaginu Hurtigruten hafði viðkomu í Reykjavík á föstudag á leið sinni til Grænlands. Fram siglir í sumar um Diskóflóa undan vesturströnd Grænlands þar sem farþegar koma við í þorpum og öðrum athyglisverðum stöðum. Fram er sérútbúið til ferða á heimskautasvæðum og er nefnt eftir skipi landkönnuðarins Roalds Amundsen.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×