Innlent

Par í sjálfheldu á Helgafelli

Fjallabjörgunarmenn úr björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið á Helgafell þar sem par er í sjálfheldu. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hugðist parið ganga á fellið og fór óhefðbundna leið.

Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt eftir klukkan 10:00 og eru um 20 manns á staðnum núna.

Samkvæmt Landsbjörg heilsast parinu vel en þau eru vant göngufólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×