Gæti stefnt í óefni vegna uppsagnanna 4. desember 2012 07:00 Fundur á LSH Frá starfsmannafundi á Landspítalanum í fyrra þar sem ræddar voru niðurskurðar- og aðhaldsaðgerðir í rekstri spítalans. Fréttablaðið/GVA
Hópur sem kallar sig „aðgerðahóp hjúkrunarfræðinga“ segir í skeyti til fjölmiðla að 130 hjúkrunarfræðingar hið minnsta hafi nú sagt starfi sínu lausu á sjö deildum Landspítalans. Verði sú tala staðfest hefur meira en einn af hverjum tíu sagt upp, en á spítalanum starfa um 1.200 hjúkrunarfræðingar. Björn Zoëga, forstjóri spítalans, segir að meta þurfi stöðuna vegna óánægju hjúkrunarfræðinga. „Það gæti alveg stefnt í óefni, en ekkert hægt að gefa sér um það fyrir fram.“ Verið er að taka saman tölur um uppsagnir hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum. Björn segist gera ráð fyrir að þær verði birtar í dag eða á morgun. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segist ekki vita hversu margir hjúkrunarfræðingar hafi sagt starfi sínu lausu. Að baki uppsögnum geti legið margvíslegar ástæður. Þannig hafi álag í starfi aukist mikið á sama tíma og gerðar hafi verið ýmsar skipulagsbreytingar í sparnaðarskyni á spítalanum. „Og fólk orðið langþreytt á þessu. Síðan þegar við birtum tölur um launahækkanir hjá öðrum opinberum starfsmönnum meðan starfsfólk heilbrigðisgeirans stendur í stað, þá kann það að hafa haft einhver áhrif.“ Sjálf segist hún hafa heyrt á skotspónum tölur um uppsagnir allt að 190 hjúkrunarfræðinga. „Svona miklar uppsagnir eru náttúrulega mjög alvarlegt mál.“ Aðgerðahópur hjúkrunarfræðinga hafði í gær boðað mótmæli á viðræðufundi sem halda átti síðdegis. Á laugardag segir Elsa hins vegar að hafi komið í ljós að ekki gæti komið til fundarins. Fundinn áttu að sitja forstjóri Landspítalans, heilbrigðisráðherra og fulltrúar hjúkrunarfræðinga. Annir ráðherrans hafi komið í veg fyrir að af honum gæti orðið, en hjúkrunarfræðingar telji mikilvægt að fá viðtal við bæði forstjóra og ráðherra í einu. Björn Zoëga segir um tvær vikur síðan fulltrúar hjúkrunarfræðinga í samstarfsnefnd hjúkrunarfræðinga og spítalans báðu hann að sitja fundinn. „En ráðherra hefur bara ekki haft tíma,“ segir Björn. „Og ég veit ekki til þess að kominn sé nýr tími.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira