Innlent

Fauk á flugvél

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. Mynd / Anton Brink
Lögreglunni á Suðurnesjum barst á sunnudag tilkynning frá stjórnstöð Öryggisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli þess efnis að flutningsvagn hefði fokið til og lent á hreyfli flugvélar Icelandair.

Samkvæmt frétt Víkufrétta stóð vélin á flughlaði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar óhappið varð.

All hvasst var á þessum tíma og fauk vagninn, sem notaður er til að flytja póst í flug, á vinstri hreyfil vélarinnar. Ekki urðu alvarlegar skemmdir vegna þessa, en þó mátti sjá rispur fremst á hreyflinum eftir atvikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×