Innlent

Verkfall sjúkraliða: "Maður spyr sig hvort þeir séu að beita verkfallinu sem þrýstingi á ríkisstjórnina.“

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Fyrir utan sjúkraliða sem sinna aðhlynningu inni á deildum voru kokkar Hrafnistu í verkfalli í gær en undanþága var fengin fyrir einn kokk sem eldaði máltíð fyrir 900 manns. Einnig voru skrifstofustarfsmenn í verkfalli, móttakan var mannlaus og enginn svaraði í símann.
Fyrir utan sjúkraliða sem sinna aðhlynningu inni á deildum voru kokkar Hrafnistu í verkfalli í gær en undanþága var fengin fyrir einn kokk sem eldaði máltíð fyrir 900 manns. Einnig voru skrifstofustarfsmenn í verkfalli, móttakan var mannlaus og enginn svaraði í símann. vísir/pjetur
„Ástandið er ekki gott. Það eru engar viðræður í gangi,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Í gær var átta tíma vinnustöðvun hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR – stéttarfélagi í almannaþjónustu.

Verkfallið nær til þeirra sem starfa hjá stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. „Við áttum góðar viðræður við samningsnefndina daginn fyrir verkfall en svo eftir símtal við stjórnina kom þvert nei við öllu og ríkissáttasemjari sleit fundinum. Það er auðvelt fyrir stjórnina að vera ekki viðstödd fundina og hafna svo öllum hugmyndum.“

Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður sjúkraliðafélags Íslands, telur að ekki sé samið við sjúkraliða til að mynda þrýsting á stjórnvöld um meiri fjárframlög til hjúkrunarheimila.vísir/valli
Framkvæmdastjórar Hrafnistu og Markar hjúkrunarheimila eru í stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og eru fulltrúar stærstu atvinnurekendanna sem verkfallið bitnar mest á. Hrafnista hefur síðustu misseri barist fyrir aukafjárveitingum frá ríkinu. Kristín segir að það líti út fyrir að Hrafnista noti verkfallið í eigin baráttu við stjórnvöld.

„Maður spyr sig hvort þeir séu að beita verkfallinu sem þrýstingi á ríkisstjórnina. Það er mjög alvarlegt ef þeir láta allt reka á reiðanum á stofnununum fyrir eigin hagsmuni,“ segir Kristín. 



Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Hrafnistu, segir stjórnina samstiga samninganefndinni og að hún hafi fullt umboð til að ná samningum. Aðspurður hvort verkfallið skapi ekki þrýsting á stjórnvöld í þeirra eigin baráttu getur hann ekki neitað því en tekur skýrt fram að verkfall sé neyðarúrræði sem enginn óskar sér. 

Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Hrafnistu, segir stéttarfélög í öldrunarþjónustu þurfa að sameinast í baráttu sinni.vísir/Pjetur
„Ríkið hækkaði laun hjá heilbrigðisstarfsfólki og þann launamun sem nú hefur myndast getum við ekki brúað nema með styrk frá ríkinu. Þetta er í raun undirrót verkfallsins. Stéttarfélög sem tengjast öldrunarþjónustu ættu að sameinast í baráttu um að sækja aukið fjármagn til ríkisins í stað þess að berjast innbyrðis,“ segir Pétur. 



Kristín svarar því svo að hún skilji ekki hvernig stéttarfélag eigi að berjast fyrir því að reka stofnunina. „Hrafnista tekur sífellt að sér fleiri stofnanir en getur ekki hækkað laun starfsmanna. Ég hef spurst fyrir um hvort Ríkisendurskoðun fylgist með hvort fjármunirnir séu að fara í það sem þeir ættu að fara í.“ 



Sjúkraliðar hafa boðað verkfall þann 22. maí ef ekki verður samið fyrir þann tíma.




Tengdar fréttir

Verkfall á öldrunarheimilum

Félagar í Sjúkraliðafélagi Íslands og ófaglærðir sem eru innan vébanda SFR leggja niður störf í dag á 20 stofnunum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×