Verkfall sjúkraliða: "Maður spyr sig hvort þeir séu að beita verkfallinu sem þrýstingi á ríkisstjórnina.“ Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 16. maí 2014 07:00 Fyrir utan sjúkraliða sem sinna aðhlynningu inni á deildum voru kokkar Hrafnistu í verkfalli í gær en undanþága var fengin fyrir einn kokk sem eldaði máltíð fyrir 900 manns. Einnig voru skrifstofustarfsmenn í verkfalli, móttakan var mannlaus og enginn svaraði í símann. vísir/pjetur „
Ástandið er ekki gott. Það eru engar viðræður í gangi,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Í gær var átta tíma vinnustöðvun hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR – stéttarfélagi í almannaþjónustu. Verkfallið nær til þeirra sem starfa hjá stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. „Við áttum góðar viðræður við samningsnefndina daginn fyrir verkfall en svo eftir símtal við stjórnina kom þvert nei við öllu og ríkissáttasemjari sleit fundinum. Það er auðvelt fyrir stjórnina að vera ekki viðstödd fundina og hafna svo öllum hugmyndum.“Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður sjúkraliðafélags Íslands, telur að ekki sé samið við sjúkraliða til að mynda þrýsting á stjórnvöld um meiri fjárframlög til hjúkrunarheimila.vísir/valliFramkvæmdastjórar Hrafnistu og Markar hjúkrunarheimila eru í stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og eru fulltrúar stærstu atvinnurekendanna sem verkfallið bitnar mest á. Hrafnista hefur síðustu misseri barist fyrir aukafjárveitingum frá ríkinu. Kristín segir að það líti út fyrir að Hrafnista noti verkfallið í eigin baráttu við stjórnvöld. „Maður spyr sig hvort þeir séu að beita verkfallinu sem þrýstingi á ríkisstjórnina. Það er mjög alvarlegt ef þeir láta allt reka á reiðanum á stofnununum fyrir eigin hagsmuni,“ segir Kristín. Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Hrafnistu, segir stjórnina samstiga samninganefndinni og að hún hafi fullt umboð til að ná samningum. Aðspurður hvort verkfallið skapi ekki þrýsting á stjórnvöld í þeirra eigin baráttu getur hann ekki neitað því en tekur skýrt fram að verkfall sé neyðarúrræði sem enginn óskar sér. Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Hrafnistu, segir stéttarfélög í öldrunarþjónustu þurfa að sameinast í baráttu sinni.vísir/Pjetur„Ríkið hækkaði laun hjá heilbrigðisstarfsfólki og þann launamun sem nú hefur myndast getum við ekki brúað nema með styrk frá ríkinu. Þetta er í raun undirrót verkfallsins. Stéttarfélög sem tengjast öldrunarþjónustu ættu að sameinast í baráttu um að sækja aukið fjármagn til ríkisins í stað þess að berjast innbyrðis,“ segir Pétur. Kristín svarar því svo að hún skilji ekki hvernig stéttarfélag eigi að berjast fyrir því að reka stofnunina. „Hrafnista tekur sífellt að sér fleiri stofnanir en getur ekki hækkað laun starfsmanna. Ég hef spurst fyrir um hvort Ríkisendurskoðun fylgist með hvort fjármunirnir séu að fara í það sem þeir ættu að fara í.“ Sjúkraliðar hafa boðað verkfall þann 22. maí ef ekki verður samið fyrir þann tíma.
Tengdar fréttir Verkfall á öldrunarheimilum Félagar í Sjúkraliðafélagi Íslands og ófaglærðir sem eru innan vébanda SFR leggja niður störf í dag á 20 stofnunum 15. maí 2014 00:01 Vinnustöðvun hjá sjúkraliðum - Hafa boðað allsherjarverkfall 22. maí Verkfall hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu stendur yfir í átta klukkustundir í dag, frá 08:00 – 16:00. 15. maí 2014 11:36 Aðstandendur aðstoða á hjúkrunarheimilum „Ég hef ekki hugmyndaflug í að hugsa það alveg til enda hvað gerist ef til allsherjarverkfalls kemur. Þetta er ömurleg staða.“ 15. maí 2014 16:34 Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Fleiri fréttir „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Sjá meira
Verkfall á öldrunarheimilum Félagar í Sjúkraliðafélagi Íslands og ófaglærðir sem eru innan vébanda SFR leggja niður störf í dag á 20 stofnunum 15. maí 2014 00:01
Vinnustöðvun hjá sjúkraliðum - Hafa boðað allsherjarverkfall 22. maí Verkfall hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu stendur yfir í átta klukkustundir í dag, frá 08:00 – 16:00. 15. maí 2014 11:36
Aðstandendur aðstoða á hjúkrunarheimilum „Ég hef ekki hugmyndaflug í að hugsa það alveg til enda hvað gerist ef til allsherjarverkfalls kemur. Þetta er ömurleg staða.“ 15. maí 2014 16:34
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent