Hildigunnur fær að spila sem áhugamaður í Svíþjóð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. febrúar 2015 20:11 Hildigunnur í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Valli
Hildigunnur Einarsdóttir er búin að finna sér félag sem hún getur spilað með til loka tímabilsins en um helgina gekk hún í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins BK Heid. Sunna Jónsdóttir, sem leikur með Hildigunni í íslenska landsliðinu, leikur með BK Heid en í frétt á heimasíðu sænska félagsins segir að á föstudagskvöld hafi forsvarsmaður liðsins fengið símtal frá íslenskum umboðsmanni. Þar hafi honum staðið til boða að semja við íslenskan landsliðsmann til loka tímabilsins án þess að greiða krónu fyrir. En það þyrfti að ganga frá félagaskiptunum fyrir miðnætti á sunnudagskvöld.Sjá einnig: Hildigunnur úr leik í vetur Það gekk eftir en félagið fékk styrktaraðila til að greiða félagaskiptagjaldið og ferðakostnað Hildigunnar til Svíþjóðar. Hún gerði áhugamannasamning við félagið sem þýðir að hún fær engin laun frá félaginu, heldur aðeins nauðsynlegan útbúnað. Forsaga málsins er sú að Hildigunnur vildi komast frá norska félaginu Tertnes, þar sem hún fékk lítið að spila, og úr varð að hún ákvað að skella sér til Molde þar sem Einar Jónsson er þjálfari. Þar var hún örugg um að fá að spila meira.Sjá einnig: Þetta eru asnaleg og gamaldags vinnubrögð Það var gengið frá öllu á réttum tíma, gengið frá greiðslu í gegnum netbanka og rafræn kvittun send til norska handknattleikssambandsins. Pappírskvittun kom svo degi síðar, en þá hafði félagaskiptaglugganum verið lokað, og það reyndist ekki vera nógu gott. Norska sambandið neitaði að taka rafrænu kvittunina góða og gilda og dæmdi Hildigunni í bann út tímabilið.
Handbolti Tengdar fréttir Hildigunnur: Ekki séns að vera áfram hjá Tertnes Hildigunnur Einarsdóttir, landsliðskona í handbolta, er gengin til liðs við norska B-deildarliðið Molde frá úrvalsdeildarliðinu Tertnes. 1. febrúar 2015 12:30 Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira
Hildigunnur: Ekki séns að vera áfram hjá Tertnes Hildigunnur Einarsdóttir, landsliðskona í handbolta, er gengin til liðs við norska B-deildarliðið Molde frá úrvalsdeildarliðinu Tertnes. 1. febrúar 2015 12:30