Hjálp þar sem neyðin er mest 29. október 2004 00:01
Engum dylst að stærstur hluti heimsins lifir við fátækt. Þegar fullfrískir íbúar þeirra landa þar sem ástandið er verst eiga ekki til hnífs og skeiðar þá þarf enginn að gera sér grillur um að aðbúnaður fatlaðra sé með svipuðum hætti og Vesturlandabúar eiga að venjast. Alþjóðlegu samtökin Inclusion International hafa um árabil barist fyrir bættum hag fólks með þroskahömlun víða um heim, ekki síst í þróunarlöndunum, en í vikunni var forseti samtakanna, Diane Richler, stödd hér á landi. Fátækt bæði orsök og afleiðing Óvíða búa jafnmargir við einhvers konar fötlun og í þriðja heiminum. Í Afríku er einn af hverjum fimm fatlaður á einhvern hátt og segir Richler að orsakir þess liggi ekki hvað síst í erfiðum skilyrðum í álfunni. "Mörg börn fæðast þroskaheft vegna þess að mæður þeirra fá ekki næga næringu á meðgöngunni en jafnframt getur vannæring á æviárum barnsins leitt af sér þroskahömlun," segir Richler. Stríð leiða af sér líkamlega fötlun, svo og náttúruhamfarir og sjúkdómar. Þannig gera malaría og heilahimnubólga marga að öryrkjum í álfunni og á seinni árum hefur alnæmi bæst við. Aðbúnaður þeirra sem búa við fötlun í þróunarlöndunum er heldur bágborinn. Rétt eins og ófatlaðir fara þeir gjarnan á mis við hreint vatn, mat og húsaskjól en þar fyrir utan þeir settir til hliðar á flestum sviðum þjóðfélagsins. Richler bendir á að fátækt sé þannig bæði orsök og afleiðing fötlunar þar sem fatlaðir hafa nánast engin tækifæri til að afla sér menntunar. "Níutíu prósent barna sem ekki ganga skóla eru fötluð. Sameinuðu þjóðirnar leggja mikla áherslu á bætta menntun í þessum heimshluta en það gefur auga leið að ef ekki er reiknað með að fatlaðir geti gengið í skóla þá verður þessum markmiðum ekki náð. Því verður að bæta aðgang þeirra og aðbúnað í þessum efnum," segir Richler. Þroskaheftum stúlkum nauðgað Diane Richler segir að í mörgum samfélögum njóti fatlaðir umhyggju samborgara sinna, ekki síst þar sem að staða stjórfjölskyldunnar er sterk og fólk er vant að búa margt saman á einu heimili. Hins vegar má víða finna rótgróna fordóma í garð þeirra sem glíma við fötlun. Stundum er litið þannig á að fæðing þroskahefts barns sé refsing frá Guði fyrir einhverjar misgerðir. "Margar konur í Afríkur og Suður-Ameríku hafa verið hraktar af heimilum sínum með þroskaheft börn sín vegna þess að eiginmenn þeirra segja að fötlunin geti ekki verið frá þeim komin," segir Richler. Richler bendir jafnframt á skelfilega þróun sem orðið hefur í Afríku með uppgangi alnæmissjúkdómsins. "Þar hefur HIV-veiran breiðst hratt út, meðal annars vegna þeirrar hégilju að smitaðir menn geti læknast við að hafa samræði við óspjallaðar meyjar. Þroskaheftar stúlkur verða gjarnan fórnarlömb þessara manna sem nauðga þeim og smita af veikinni." Hlekkjuð við gluggann Aðspurð um hvað verði um einstæðu mæðurnar með fötluðu börnin segir Richler að þær séu í hreint hræðilegri stöðu þar sem þær verði að sjá sér og börnum sínum farborða en fá enga aðstoð við það. "Ég þekki dæmi af sex ára gamalli bólivískri stúlku sem var alvarlega þroskaheft. Á meðan móðir hennar vann fyrir heimilinu var litla telpan alein heima, hlekkjuð við gluggarimlana. Sem betur fer gripu systursamtök okkar í landinu inn í og komu stúlkunni í skóla. Þá fyrst fór hún að læra að tala og geta bjargað sér sjálf," segir Richler og bætir því við að því miður sé þetta dæmi alls ekki einstakt. Hvað getum við gert? Richler notaði tímann hér á landi til að kynna samtök sín og málstað þeirra fyrir stjórnvöldum og hitti meðal annars forsætisráðherra og forseta Íslands í því skyni. Enda þótt framlög Íslendingar til þróunarmála séu ekki ýkja há bendir hún á að þau hafi vaxið á síðustu árum. Richler telur að Íslendingar geti kennt öðrum þjóðum ýmislegt um hvernig búa megi að fötluðum, rétt eins og við höfum kennt fjarlægum þjóðum að veiða fisk og virkja hveri. Hún segir að viðbrögð hérlendra ráðamanna gefi tilefni til bjartsýni en hvetur jafnframt íslensku þjóðina til að leggjast á árarnar til að það verði að veruleika.
Erlent Fréttir Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Witkoff fundar með Selenskí Erlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Fleiri fréttir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Samfélagsmiðlabannið hefur tekið gildi í Ástralíu Forsetafrúin kallaði mótmælendur heimskar tíkur Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Sjá meira